Nöfnurnar Kristín Inga Karlsdóttir og Kristín Þórhallsdóttir.

Sameina krafta og stofna Dýralæknasetrið

Nöfnurnar og dýralæknarnir Kristín Þórhallsdóttir og Kristín Inga Karlsdóttir hafa ákveðið að hefja formlegt samstarf með því að stofna Dýralæknasetrið sf. Kristín Þórhallsdóttir er frá Laugalandi í Stafholtstungum í Borgarfirði og hefur rekið dýralæknastofu þar undanfarin sex ár. Hún útskrifaðist frá Kaupmannahafnarháskóla í byrjun árs 2013 og hefur því öðlast tíu ára starfsreynslu. Kristín Þórhalls segist spennt yfir komandi breytingum en hún sér fyrir sér samstarfið sem tækifæri til að stuðla að betri uppbyggingu dýralæknaþjónustu á svæðinu. ,,Þetta snýst helst um það að dýralæknar sameini krafta sína, sem hefur verið draumur minn lengi. Ég sé það fyrir mér þannig að hér verði meiri uppbygging og tækifæri til að bæta þjónustu með meiri tækjabúnaði og þess háttar. Svo hefur ekki verið dýralæknaþjónusta í þéttbýlinu á Akranesi undanfarin ár. Við vonumst svo til að geta bætt við meiri þjónustu, þ.e. að önnur okkar verði alltaf við og auðveldara verði þá að ná í okkur. Þá munum við starfa við betri aðstæður og meiri uppbyggingu. Síðan er það líka eflandi fyrir okkur báðar að starfa saman í okkar fagi,“ segir Kristín Þórhallsdóttir í samtali við Skessuhorn.