Snæfell fór létt með Breiðablik b

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfell og Breiðablik b áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Gengi liðanna í deildinni hefur til þessa verið mjög ólíkt, Snæfell vann í gær sinn áttunda leik í röð á meðan b lið Breiðabliks er enn án sigurs eftir tíu leiki. Það var strax ljóst í leiknum að mikill munur er á getu liðanna, Snæfellskonur komust í 8:0 og staðan var 20:2 fyrir Snæfelli eftir fimm mínútna leik í fyrsta leikhluta. Næstu mínútur juku heimakonur forskotið enn meira og staðan 34:7 þegar flautan gall. Það var hins vegar ansi lítið að frétta í öðrum leikhluta því þar skoruðu liðin samtals alls tólf stig, Snæfell átti átta af þeim og staðan breyttist því ekki mikið, hálfleikstölur 42:11 Snæfelli í vil.\n\nÍ þriðja leikhluta var ekki mikill munur á stigaskori liðanna, Snæfell vann leikhlutann 16:12 og var með 35 stiga forystu fyrir lokaleikhlutann, 58:23. Í fyrri hluta hans fundu bæði lið alls ekki fjölina og staðan eftir fimm mínútna leik, 65:27. Þá stigu heimakonur aðeins fastar á bensíngjöfina og skildu gestina eftir í reyk, lokatölur 79:30 fyrir Snæfelli.\n\nSnæfell nýtti bekkinn sinn vel að þessu sinni og fengu allir tólf leikmenn liðsins að spila tíu mínútur eða lengur í leiknum og komust allir á blað nema tveir í leiknum. Atkvæðamest hjá Snæfelli var Minea Takala með 19 stig, Cheah Rael Whitsitt var með 14 stig og 17 fráköst og Rebekka Rán Karlsdóttir með 13 stig. Hjá Breiðablik b var Hera Magnea Kristjánsdóttir með 15 stig eða helming stiga liðsins og þær María Sánchez-Brunete og Eyrún Ósk Alfreðsdóttir voru með 5 stig hvor.\n\nNæsti leikur Snæfells er næsta miðvikudag eftir viku á móti Þór Akureyri fyrir norðan og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Snæfell fór létt með Breiðablik b - Skessuhorn