
Eygerður Margrétardóttir, sérfræðingur í umhverfis- og úrgangsmálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga svarar hér fyrirspurn á fundinum. Ljósm. sþ.
Ný lög um sorpmál setja sveitarfélög í krefjandi stöðu
Ný lög um meðhöndlun úrgangs setja sveitarfélögum skyldur á hendur hvað söfnun og ráðstöfun úrgangs varðar. Skylt verður um næstu áramót að auka sérsöfnun við heimili, svo eitthvað sé nefnt en breytingar má rekja til nýrrar úrgangslöggjafar í Evrópu. Við innleiðingu laganna fengu sveitarfélög og atvinnulíf góðan tíma til umsagnar á lögunum og hefur greinargóð vinna farið fram undanfarna mánuði.