
Fjórða tunnan kemur um áramótin
Á ráðstefnu um úrgangsmál, sem fram fór á Hótel Hamri í Borgarnesi sl. mánudag, komu fulltrúar sveitarfélaga á Vesturlandi saman til að kynna sér ný lög sem taka munu gildi um næstu áramót og snúa að flokkun sorps. Sorpurðun Vesturlands stóð fyrir ráðstefnunni en frá og með áramótum munu landsmenn innleiða ný lög þar sem skylt verður að flokka í fjóra aðskilda flokka, þ.e. pappi og pappír, plast, lífrænn úrgangur og almennt sorp. Ekki verður því lengur heimilt að flokka pappa og plast í sömu tunnu. Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Sorpu kynnti á fundinum tvískiptar tunnur sem höfuðborgarsvæðið hyggst hefja notkun á en samræmt flokkunarkerfi hefur verið samþykkt fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Akraneskaupstaður hefur nú þegar fengið kynningu á flokkunarkerfinu og fleiri sveitarfélög sýnt því áhuga.