
Skinkuhorn hlaðvarp – Rúnar Gíslason
Borgnesingurinn Rúnar Gíslason er viðmælandi Skinkuhorns að þessu sinni. Hann starfar sem rannsóknarlögreglumaður í lögregluumdæmi Suðurnesja og fór yfir helstu þætti starfs síns í Skinkuhornsþætti vikunnar. ,,Þetta gerðist svolítið óvart. Þetta átti að vera sumarstarf en mig langaði að sækja um til að víkka sjóndeildarhringinn. Svo bara festist maður í þessu eins og gjarnan vill verða. Ég vann náttúrulega í átta ár á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Ég byrjaði þar sem uppvaskari þegar ég var ungur en vann svo í öllu þarna með árunum. Ég flutti svo í bæinn og ætlaði að fara að mennta mig en fattði svo að ég hef engan áhuga á því að mennta mig. Eða ég allavega vissi ekki í hverju ég vildi mennta mig svo ég fer að vinna með börnum í grunnskóla. Kennarar eru svo í fríi á sumrin þannig ég fór að leita mér að sumarvinnu. Þá réði ég mig í lögregluna á Norðurlandi Vestra, sem sagt á Sauðárkróki. Ég endaði á því að vera þar í þrjú ár og líkaði það afar vel. Svo langaði mig að færa mig sunnar á bóginn og prófa meira, þá vann ég á Vesturlandi í eitt sumar með starfsstöðvar í Borgarnesi og á Akranesi,“ segir Rúnar um vegferð sína að lögreglustarfinu.