Fréttir

true

Starfsemi Smiðjuloftsins hætt á Smiðjuvöllum

Smiðjuloftið á Akranesi hefur verið starfandi í á fimmta ár eða frá því hjónin Þórður Sævarsson og Valgerður Jónsdóttir opnuðu aðstöðu að Smiðjuvöllum 17 árið 2018. Í færslu á FB síðu Smiðjuloftsins frá því í gærkvöldi kemur fram að starfsemin að Smiðjuvöllum mun hætta fljótlega eftir áramót. „Smiðjuloftið var opnað með margþætta starfsemi í huga…Lesa meira

true

Hrútaskráin komin út

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna fyrir 2022-23 er nú komin á vefinn og er sömuleiðis væntanleg á prenti í næstu viku. Jafnan er víða til sveita beðið með eftirvæntingu eftir að Hrútaskráin komi út. Þá setjast menn yfir þetta merka rit, spá og spekúlera og velja í framhaldinu hvaða sæði verður pantað í uppáhalds ærnar á bænum. Á…Lesa meira

true

Framtakssjóður fjárfestir í Eðalfangi – móðurfyrirtæki Eðalfisks og Norðanfisks

Framtakssjóðurinn Horn IV hefur fjárfest í fyrirtækinu Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi í félaginu. Fyrirtækið Eðalfang er í grunninn tvö vestlensk matvælafyrirtæki með áherslu á sjávarútveg; þ.e. Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi og Norðanfiskur ehf. á Akranesi. Nú hefur verið gefið út nýtt hlutafé en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til fjármagn en…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar afhent

Í gær voru hin árlegu umhverfisverðlaun Borgarbyggðar afhent við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Borgarbyggðar. Að venju var það umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem veitti verðlaunin og stýrðu samkomunni þær Sigrún Ólafsdóttir formaður nefndarinnar og Hrafnhildur Tryggvadóttir deildarstjóri umhverfis- og framkvæmdamála. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi um hvaða garðar, býli eða fyrirtæki verðskulduðu að hljóta…Lesa meira

true

Kirkja byggð í Grímsey

Grímsey liggur á heimskautsbaug, 41 km frá norðurströnd landsins. Hún er 5,3 ferkílómetrar að stærð, 5,5 km að lengd og bjargbrúnin stendur hæst 105 metra yfir sjó. Íbúar í eynni eru 57 talsins og hefur fækkað nokkuð síðustu árin. Þar var leikskóli og grunnskóli og þar var Miðgarðakirkja, sem reist hafði verið 1867 og þótti…Lesa meira

true

Súpufundur í Borgarbyggð vel sóttur

Þriðjudaginn 15. nóvember sl. var haldinn súpufundur fyrir atvinnurekendur í Borgarbyggð. Um sjötíu manns mættu til að hlýða á áhugaverða örfyrirlestra og taka þátt í samtalinu. Tilgangur fundarins var að auka samtal milli atvinnulífs og stjórnsýslunnar. Á örfyrirlestrum fengu gestir kynningu á tilgangi og markmiði Uppbyggingarsjóðs Vesturlands, kynningu á nýju deiliskipulagi í Vallarási ásamt fræðslu…Lesa meira

true

Nýtnivika hefst um helgina

Dagana 19.-27. nóvember næstkomandi stendur evrópsk Nýtnivika yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun óþarfa úrgangs. Þema ársins er sjálfbærni og hringrás textíls undir slagorðinu Sóun er ekki lengur í tísku! Textíliðnaðurinn er einn sá umfangsmesti í heimi og honum…Lesa meira

true

Niðurrif fimm bygginga fyrirhugað

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 14. nóvember síðastliðinn voru samþykkt fyrirliggjandi útboðsgögn um niðurrif á fjórum byggingum. Þær eru á Suðurgötu 108, Suðurgötu 124, Dalbraut 8 og Dalbraut 10. Þá var enn fremur samþykkt niðurrif á Vesturgötu 62 sem var á sínum tíma íþróttahús, síðar kennslustofa fyrir smíðar og nú síðast var Búkolla með…Lesa meira

true

Opið hús hjá HVE í Stykkishólmi í dag

Fram kemur á heimasíðu Stykkishólmsbæjar að í tilefni af 30 ára afmæli Háls- og bakdeildarinnar í Stykkishólmi bjóði Heilbrigðisstofnun Vesturlands gestum og gangandi að líta við í dag í húsnæði HVE, kynnast starfseminni og þiggja léttar veitingar. Opið verður á milli 16.30 og 18.30 að Austurgötu 7.Lesa meira

true

Ljósakrossar í kirkjugarðinn helsta fjáröflun Lionsklúbbsins

Líkt og mörg undanfarin ár verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum í Görðum nú í byrjun aðventunnar. „Við verðum í garðinum á eftirtöldum dögum: Laugardaginn 26. nóvember kl. 11.00.- 15.30, sunnudaginn 27. nóvember kl. 13.00.- 15.30 og laugardaginn 3. desember kl. 13.00.- 15.30,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum. „Við höfum lengi styrkt…Lesa meira