
Fyrirtækin sérhæfa sig í vinnslu sjávarfangs.
Framtakssjóður fjárfestir í Eðalfangi – móðurfyrirtæki Eðalfisks og Norðanfisks
Framtakssjóðurinn Horn IV hefur fjárfest í fyrirtækinu Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi í félaginu. Fyrirtækið Eðalfang er í grunninn tvö vestlensk matvælafyrirtæki með áherslu á sjávarútveg; þ.e. Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi og Norðanfiskur ehf. á Akranesi. Nú hefur verið gefið út nýtt hlutafé en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til fjármagn en heildarfjármögnun í þessu verkefni nú er einn milljarður króna. Samkvæmt tilkynningu frá félögunum verður nýtt hlutafé nýtt til fjárfestinga í tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu sem mun nýtast félaginu við uppbyggingu á vinnslu til framleiðslu á laxi til útflutnings og til að fylgja eftir og efla sölu- og markaðsstarf á alþjóða mörkuðum.