
Valgerður Jónsdóttir ásamt börnum að leik. Ljósm. af FB síðu Smiðjuloftsins.
Starfsemi Smiðjuloftsins hætt á Smiðjuvöllum
Smiðjuloftið á Akranesi hefur verið starfandi í á fimmta ár eða frá því hjónin Þórður Sævarsson og Valgerður Jónsdóttir opnuðu aðstöðu að Smiðjuvöllum 17 árið 2018. Í færslu á FB síðu Smiðjuloftsins frá því í gærkvöldi kemur fram að starfsemin að Smiðjuvöllum mun hætta fljótlega eftir áramót.