Nýja kirkjan risin og norðurljósin sveipa hana ævintýraljóma.

Kirkja byggð í Grímsey

Grímsey liggur á heimskautsbaug, 41 km frá norðurströnd landsins. Hún er 5,3 ferkílómetrar að stærð, 5,5 km að lengd og bjargbrúnin stendur hæst 105 metra yfir sjó. Íbúar í eynni eru 57 talsins og hefur fækkað nokkuð síðustu árin. Þar var leikskóli og grunnskóli og þar var Miðgarðakirkja, sem reist hafði verið 1867 og þótti með merkilegri kirkjubyggingum landsins. Það var íbúum eyjarinnar mikið áfall þegar kirkjan brann til grunna í september á síðasta ári. Ekki réðist neitt við eldinn í stífri norðanátt sem þá var og nánast allt varð eldinum að bráð. En menn létu ekki deigan síga. Fljótlega var ákveðið að byggja nýja kirkju og fá Hjörleif Stefánsson arkitekt til þess að teikna hana. Var það gert í nánu samstarfi við íbúa Grímseyjar og útlit nýju kirkjunnar hefur augljósa skírskotun til þeirrar eldri. Í framhaldinu var svo samið við smíðaverkstæðið Loftkastalann um verkið, en það er í eigu Vestlendinganna Hilmars Jóhannessonar og Ingu Lóu Guðjónsdóttur. Skessuhorn tók þau tali fyrir nokkru til að forvitnast um kirkjubygginguna og framvindu mála.

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

Ekki gefist upp

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

Grímseyingar sameinuðust fljótt um byggingu nýs guðshúss í stað Miðgarðakirkju sem svo var nefnd og var nyrsta kirkja landsins. Þau Hilmar og Inga Lóa voru kölluð til verksins. Þau eru búsett í Rauðanesi í Borgarhreppi en með fyrirtækið í Gufunesi í Reykjavík, þar sem þau reka listasmiðju. En kirkjusmíðin krafðist samfelldrar viðveru þeirra í Grímsey síðastliðna rúma fjóra mánuði og verkinu er ekki lokið. Einstök staðsetning byggingarinnar veldur því að ekki er auðvelt um vik með efnisflutninga og tækjabúnað. Þau gátu t.d. ekki haft afnot af krana til að athafna sig og urðu að smíða stillansa sjálf eftir því sem byggingunni miðaði. Kirkjan er 12,5 metrar á hæð og hönnunin er mjög sérstök. Fullbúin mun hún nánast verða hluti landslagsins. Veggirnir eru úr lerki og sökkull og þak eru klædd flísum úr sérskornu íslensku stuðlabergi. Með tímanum mun lerkið grána. Við kirkjuna er útbygging með almenningssnyrtingum, en slíkt hefur vantað í eyjunni.

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

Ekki fastir bekkir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

Byggingin í heild er 89 fermetrar að gólffleti og kirkjuskipið sex metra breitt og ellefu metra langt. Þar er hátt til lofts og kórloft. Um formlegan kór er þó ekki að ræða í Grímsey heldur annast söfnuðurinn sönginn. Gluggar kirkjunnar eru úr lerki eins og veggir hennar. Þeir eru gereftislausir og áfellur eru úr svokölluðu Carbon stáli. Ekki verða í kirkjunni neinir fastir bekkir heldur lausir stólar og er ætlunin að nýta hana fyrir ýmsa menningarviðburði auk kirkjulegra athafna. Hún er nú orðin fokheld og næsta verk er að setja stuðlabergsflísar á þakið. Þær munu vega um níu tonn, svo hugað hefur verið sérstaklega að burði byggingarinnar.

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

 

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

Umfjöllunina í heild auk mynda má sjá í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út síðastliðinn miðvikudag.

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

Þá má nefna að nokkuð vantar enn upp á fjármögnun verksins og styrktarreikningur því enn opinn fyrir þá sem vilja taka þátt í endurreisn Miðgarðakirkju. Reikningsnúmerið er: 565-04-250731, kt: 460269-2539. 

Kirkja byggð í Grímsey - Skessuhorn