
Frístundabíll keyrir nú milli Búðardals og Lauga
Í nóvember býður Íþróttafélagið Undri í Dalabyggð upp á gjaldfrjálsar ferðir í frístundabíl sem ekið er á milli Búðardals og Lauga í Sælingsdal þrisvar í viku en þar eru íþróttahús og sundlaug sveitarfélagsins staðsett. Um er að ræða tilraunaverkefni en Undri fékk einnar milljónar krónu styrk frá Dalabyggð fyrir verkefninu og er því hægt að bjóða upp á þjónustuna gjaldfrjálsa fyrst um sinn. Þrisvar í viku eru íþróttaæfingar inni á Laugum og hafa æfingatímar tekið mið af því að foreldrar keyri börnin á æfingar. „Við erum með þessu að líkja eftir því að það sé íþróttahús inni í Búðardal, og styttum þannig daginn hjá börnunum því ef foreldrar þurfa að keyra börn á æfingar þá geta æfingar ekki byrjað fyrr en klukkan hálf fimm, að loknum vinnudegi foreldra,“ segir Rúna Blöndal, formaður Undra, í samtali við Skessuhorn.