
Eftir hádegi í dag tóku nemendur Brekkubæjarskóla á Akranesi sig til og trommuðu í takt á skólalóðinni. Tilefnið var Dagur gegn einelti og trommuðu krakkarnir í alls sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar sem þau vilja hafa eineltislausan. Þá var einnig myndaður regnbogi af nemendum í litum regnbogans til þess að tákna fjölbreytileikann…Lesa meira








