
Júníus Meyvant spilaði í kirkjunni á HeimaSkaga tónlistarhátíðinni sem var á Akranesi um helgina. Hér flytur hann lagið Payload af plötunni Guru sem kom út fyrir nokkrum dögum og með honum spilar Rubin Pollock.Lesa meira

Júníus Meyvant spilaði í kirkjunni á HeimaSkaga tónlistarhátíðinni sem var á Akranesi um helgina. Hér flytur hann lagið Payload af plötunni Guru sem kom út fyrir nokkrum dögum og með honum spilar Rubin Pollock.Lesa meira

ÍA og Hrunamenn mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram á Skipaskaga. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti í leiknum á meðan heimamenn voru alveg meðvitundarlausir, staðan 2:18 Hrunamönnum í vil eftir fimm mínútna leik. Skagamönnum gekk illa að minnka muninn en Gabriel Adersteg setti niður síðustu sex stigin í…Lesa meira

Allt frá því í sumar hefur Steinunn Árnadóttir í Borgarnesi fylgst grannt með líðan og aðbúnaði hrossa í hesthúsahverfi í Borgarnesi auk nautgripa og kinda á bæ í Borgarfirði, en allar þessar skepnur tilheyra sömu umráðaaðilum. Málinu hefur hún fylgt fast eftir við embættismenn sem framfylgja skulu lögum um dýravelferð berist ábendingar um að eitthvað…Lesa meira

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir Viðurkenningarhátíð Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) 2023. „Hvaða þrjár konur verða heiðraðar og valdar úr hópi tilnefndra kvenna kemur í ljós á næstu FKA Viðurkenningarhátíð FKA á Grand Hótel 26. janúar 2023. Þá mun koma í ljós hvaða konur hljóta FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2023. Félag…Lesa meira

Dagana 2. og 3. nóvember var haldið barna- og ungmennaþing á Akranesi. Þingið er hluti af innleiðingu verkefnisins Barnvænt sveitarfélag sem Akraneskaupstaður vinnur að í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Einnig er þingið hluti af undirbúningi ungmennaráðs fyrir bæjarstjórnarfund unga fólksins, en yfirskrift þingsins var: „Barnvænt Akranes“. Barna- og ungmennaþingið fór fram í frístundamiðstöðinni Þorpinu…Lesa meira

Næstkomandi fimmtudag klukkan 17 verður haldið útgáfuteiti í Byggðasafninu í Görðum á Akranesi vegna útgáfu bókarinnar Knattspyrnubærinn – 100 ára knattspyrnusaga Akraness, eftir Björn Þór Björnsson. Þar verður bókin kynnt og seld á tilboðsverði sem verður 7.500 krónur. „Að sjálfsögðu eru allir velkomnir og það væri vitanlega gaman að sjá þar sem flesta,“ segir í…Lesa meira

Í dag er síðasti dagurinn sem sala Neyðarkalls björgunarsveitanna stendur yfir. Að venju er hér um eina af mikilvægustu fjáröflunum björgunarsveita landsins að ræða. Að sögn þeirra björgunarsveitarmanna sem Skessuhorn hefur rætt við hafa viðtökur almennings verið mjög jákvæðar. Á myndinni er Jakob Guðmundsson stjórnarmaður í Brák í Borgarnesi að selja kallinn í anddyri Hyrnutorgs…Lesa meira

Nú rétt í þessu var lýst kjöri í kosningu um formann Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem haldinn er í Laugardalshöllinni. Alls kusu 1.712 og voru gild atkvæði 1.700. Bjarni Benediktsson hlaut góða kosningu; 1.010 atkvæða eða 59,4% greiddra atkvæða. Guðlaugur Þór Þórðarson fékk 687 atkvæði eða 40,4%. Aðrir fengu 3 atkvæði. Bjarni hélt í kjölfarið…Lesa meira

Lista- og menningarhátíðin Vökudagar hefur staðið yfir á Akranesi frá 27. október en lýkur í kvöld þegar opið verður á síðustu viðburðina sem tengjast hátíðinni (sjá skagalif.is). Óhætt er að segja að dagskráin hafi verið fjölbreytt og margir viðburðir í gangi. Meðfylgjandi mynd var tekin í gær þegar Kirkjukór Akraneskirkju flutti Sálumessu eftir Gabriel Fauré…Lesa meira

Eins og vart hefur farið framhjá neinum hefur landsfundur Sjálfstæðisflokksins staðið yfir frá föstudegi í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Fundinum lýkur í dag með kosningu í trúnaðarstöður innan flokksins. Byrjað verður að kjósa um formann, en tveir eru í kjöri; Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður flokksins til þrettán ára og Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður og ráðherra.…Lesa meira