Fréttir

true

Breyta reglum um frístundastyrk

Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 11. október að breyta reglum um frístundastyrk hjá sveitarfélaginu. Styrkurinn nær nú einnig til félagsstarfs, námskeiða, íþrótta og annarra tómstunda sem ekki eru í boði. Þannig verður hægt að nýta styrkinn til að mynda þegar sótt eru námskeið á netinu eða farið á íþróttaæfingar í öðrum sveitarfélögum. Styrkurinn nær…Lesa meira

true

Danskur drengjakór syngur í Reykholti í kvöld

Einn elsti drengjakór Danmerkur heldur tónleika í Reykholtskirkju í kvöld en kórinn var stofnaður árið 1949. Drengjakór Herning er nútímalegur dómkirkjukór með fjölbreytta efnisskrá en á heimasíðu kórsins segir að kórinn sé einn af tveimur atvinnukórum sem til eru í Skandinavíu. Kórstjóri Herning drengjakórsins heitir Charlotte Rowan en tók hún við kórstjórnarsprotanum árið 2020. Tónleikarnir…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í bikarnum eftir tap gegn Selfossi

ÍA og Selfoss mættust í 32-liða úrslitum í VÍS bikar karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór viðureignin fram á Akranesi. Liðin áttust við í deildinni á föstudagskvöldið þar sem Selfoss vann stórsigur 116:87 og því ljóst að Skagamenn ættu erfiðan leik fyrir höndum. Gestirnir byrjuðu betur og voru komnir með sjö stiga forystu eftir…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn kemur á Akranes í dag og verður við Ráðhúsið frá klukkan 10-17. Næst er bíllinn væntanlegur á Vesturland 1. nóvember þegar bíllinn verður í Borgarnesi við N1 klukkan 10. Hægt er að fylgjast með ferðum bílsins á blodbankinn.isLesa meira

true

Ætla að rafmagnsvæða bílaflotann fyrir árið 2030

Eins og fram kom í leiðara síðasta blaðs hefur fyrirtækið Ragnar og Ásgeir í Grundarfirði ákveðið að festa kaup á rafknúnum flutningabíl og er það eitt ellefu fyrstu fyrirtækja í landinu sem fá slíka bíla frá Volvo Trucks á næsta ári. Þess má geta að stutt er síðan fyrirtækið fékk afhenta sex nýja Volvo dráttarbíla…Lesa meira

true

Stuðningur Strandveiðifélagsins við tillögu um fiskveiðistjórnunarkerfið

Strandveiðifélag Íslands styður fyllilega við tillögu til þingsályktunar frá 15. sept. sl um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins sem lögð var fram af Bjarna Jónssyni, ásamt meðflutningsmönnunum Steinunni Þóru Árnadóttur, Jódísi Skúladóttur, Orra Páli Jóhannssyni og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur. Í þingsályktunartillögunni kemur fram að Alþingi felur matvælaráðherra að efla félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með aukinni hlutdeild þess…Lesa meira

true

Mótmæla fyrirhugaðri lokun Hafró í Ólafsvík

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar fundaði í morgun með matvælaráðherra og fulltrúum úr Matvælaráðuneytinu, þetta tilkynnir Snæfellsbær á Facebook-síðu sveitarfélagsins. Líkt og Skessuhorn greindi frá í síðustu viku mun útibú Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík loka um áramótin. Vegna þeirra tíðinda hefur bæjarstjórn Snæfellsbæjar undanfarið fundað með forstjóra Hafró og þingmönnum kjördæmisins og nú síðast, í morgun, með matvælaráðherra til…Lesa meira

true

Átak sem styttir bið eftir meðferð við kæfisvefni

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkratryggingum Íslands fjármagn til kaupa á 1.000 svefnöndunarvélum til meðhöndlunar á kæfisvefni, þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins í dag. Ákvörðunin tengist aukinni getu Landspítala til að veita meðferð við kæfisvefni með ráðningu aðstoðarfólks við eininguna sem kemur að þessari þjónustu. Rúmlega 1.000 einstaklingar bíða nú meðferðar og er biðtíminn…Lesa meira

true

Snæfell með fjórða sigurinn í röð

Snæfell og Ármann mættust í 1. deild kvenna í körfuknattleik síðasta miðvikudagskvöld og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfell skoraði fyrstu sjö stigin í leiknum en Ármann tók þá svipaða rispu og bætti um betur með tíu stigum í röð. Eftir það var jafnt á öllum tölum og jafnt eftir fyrsta leikhluta, 14:14. Í stöðunni 20:22…Lesa meira

true

Lilja Rannveig er fyrsti viðmælandi Skinkuhorns

Hlaðvarp Skessuhorns, Skinkuhornið, leit dagsins ljós í síðustu viku en í fyrsta þættinum fara þær Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir, blaðamenn Skessuhorns, yfir fyrirhugaðar breytingar á starfsemi Skessuhorns ásamt því að kynna sig sjálfar. Hlaðvarpið mun fara bakvið greiðsluvegg skessuhorns.is í lok október en munu nokkrir þættir vera öllum opnir til að byrja með…Lesa meira