Fréttir

true

Mikið um að vera hjá Skotfélagi Snæfellsness

Félagsmenn hjá Skotfélagi Snæfellsness hafa heldur betur verið með ermarnar upp brettar undanfarin misseri. Nýjasta viðbót við aðstöðu hjá félaginu er 75 fermetra skothús sem hefur risið á svæði félagsins í Kolgrafafirði. Skothúsið er af fullkomnustu gerð með ellefu skotlúgum og þar af eru fimm skotlúgur hugsaðar fyrir skotfólk í hjólastólum. Jón Pétur Pétursson er…Lesa meira

true

Fyrirtækjakönnun landshlutanna gefin út

Í liðinni viku var fyrirtækjakönnun landshlutanna gefin út fyrir árið 2022. Hún var framkvæmd á fyrri hluta ársins, í mánuðunum janúar til mars. Rúmlega 1600 fyrirtæki tóku þátt, þar af tæplega 200 af Vesturlandi. Könnunin var síðast framkvæmd haustið 2019 og svipaður fjöldi fyrirtækja tók þá þátt. Glæður eru fréttabréf SSV sem Vífill Karlsson hagfræðingur…Lesa meira

true

Bjössi Lú byrjaður á sínu vegglistaverki

Listamaðurinn Björn Lúðvíksson, eða Bjössi Lú eins og hann kýs að kalla sig, vakti mikla athygli fyrir rúmum fimm árum þegar hann málaði Bowie vegginn við Kirkjubraut á Akranesi. Nýjasta verkefni hans verður að finna á vegg við Gamla Kaupfélagið en þar byrjaði hann í síðustu viku að mála vegg sem inniheldur að einhverju leyti…Lesa meira

true

Samevrópsk íþrótta- og hreyfivika í gangi

Íþrótta- og hreyfivika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. til 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive. Skipulagðir viðburðir eru í a.m.k. fjórum sveitarfélögum á Vesturlandi, tileinkaðir vikunni, þ.e. á Akranesi, Stykkishólmi, Grundarfirði og í Snæfellsbæ. Heilsueflandi samfélag á Akranesi í samstarfi við ÍA leggur…Lesa meira

true

Hlutu heiðursviðurkenningu fyrir langa setu í sveitarstjórnum

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem lauk í gær, voru nokkrir sveitarstjórnarfulltrúar heiðraðir fyrir langa setu í sveitarstjórnum. Fjórir fengu viðurkenninguna í ár en það voru þeir Finnbogi Leifsson, sem setið hefur í sveitarstjórn samfleytt í 37 ár, síðari hluta þess tíma fyrir Borgarbyggð. Halldór Jónsson hefur starfað í sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps í…Lesa meira

true

Þórsnesþing, Stykkishólmsbær eða Sveitarfélagið Stykkishólmur

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns óskaði sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar í byrjun júlí eftir eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag. Auglýst var eftir tillögum að nafni og rann út frestur til að skila inn tillögum 1. júní. Alls bárust 72…Lesa meira

true

Níðið um Snorra á fyrirlestri í Snorrastofu

Þriðjudaginn 27. september kl. 20 flytur Úlfar Bragason, prófessor eremitus, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina; „Harðmúlaðr er Skúli: Níðið um Snorra“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson,“ er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Snorri Sturluson var í Noregi á árunum 1218–1220 eftir því sem Íslendinga saga Sturlu…Lesa meira

true

Miðstjórn ASÍ fordæmir forgangsröðun ríkisstjórnar í heilbrigðismálum

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir í ályktun sinni yfir þungum áhyggjum af stöðu heilbrigðismála í landinu og fordæmir þá forgangsröðun sem birtist í fjármálafrumvarpi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. „Dag hvern berast fregnir af ófremdarástandi í heilbrigðiskerfi landsmanna. Þrátt fyrir áköll starfsfólks og sérfræðinga hafa stjórnvöld árum saman kosið að leiða hjá sér augljósan vanda og skella skollaeyrum…Lesa meira

true

Bílasafnið í Brákarey verður áfram lokað

Fulltrúar úr stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarðar áttu nýverið fund með embættismönnum og fulltrúum úr sveitarstjórn Borgarbyggðar um stöðu húsnæðismála félagsins í Brákarey. Bílasafn félagsins hefur verið lokað frá því í febrúar á síðasta ári þegar því var lokað vegna ónógra eldvarna. „Það eru engar lausnir á borðinu eins og er. Afstaða núverandi sveitarstjórnar varðandi lokun gamla…Lesa meira

true

Snæfell og Skallagrímur mætast í VÍS bikarnum

Í dag var dregið í 16 liða úrslitum í VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfuknattleik og voru fjögur Vesturlandslið í pottinum. Vesturlandsslagur verður í bikarkeppni karla þar sem Snæfell og Skallagrímur mætast og þá mæta ÍA eða Selfoss Hetti eða Þór Þorlákshöfn. Þá mætir kvennalið Snæfells liði Breiðabliks en þessi lið mættust í undanúrslitum…Lesa meira