
Eldgos hófst rétt í þessu á Reykjanesi í Merardölum við Fagradalsfjall eða um klukkan 13:30. Veðurstofa Íslands mun nú kanna nánari staðsetningu og gefa betri upplýsingar um gosið.Lesa meira

Eldgos hófst rétt í þessu á Reykjanesi í Merardölum við Fagradalsfjall eða um klukkan 13:30. Veðurstofa Íslands mun nú kanna nánari staðsetningu og gefa betri upplýsingar um gosið.Lesa meira

Vesturlandsliðin Víkingur Ólafsvík og Kári unnu sína leiki í 2. og 3. deild karla í knattspyrnu í vikunni fyrir verslunarmannahelgina. Víkingur vann frábæran sigur á toppliði Njarðvíkur sem fyrir leikinn var án taps, hafði unnið tólf leiki og gert eitt jafntefli. Oumar Diouck kom heimamönnum í Njarðvík yfir á 16. mínútu en Björn Axel Guðjónsson…Lesa meira

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur greindi frá því á Facebook síðu sinni á mánudaginn að veðurfar í júlí hafi verið undir meðallagi gott. Mánuðurinn var sólarlítill og meðalhitinn einni gráðu lægri en meðalhiti í júlí var á árunum 1991-2020. Þrátt fyrir fáa sólardaga og mánuðurinn hafi einkennst af skýjuðum dögum var ekki mikil rigning svo bændur náðu…Lesa meira

Breiðablik og ÍA mættust á mánudagskvöldið í Bestu deild karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Kópavogsvelli. Gísli Laxdal Unnarsson kom Skagamönnum óvænt yfir á 54. mínútu en á tæpum tíu mínútna kafla skoruðu Blikar þrjú mörk og gerðu út um leikinn. Þetta var fimmta tap Skagamanna í röð í Bestu deildinni og eru…Lesa meira

Undanfarna daga hafa landsmenn á suðvesturhorni landsins fundið fyrir tíðum jarðskjálftum sem eiga upptök sín á Reykjanesi. Stærstu skjálftarnir hafa mælst yfir 5 og hafa skjálftarnir fundist um nær allt Vesturland eða á Akranesi, í Borgarfirði, Dalabyggð og víðar. Veðurstofan bendir á að aukin hætta sé á grjóthruni á suðvesturhorninu og varast þurfi brött björg…Lesa meira

Ánægjuvogin, sem unnin er af Rannsóknum og greiningu (R&g) fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ), kom nýverið út. R&g hafa lagt spurningalista fyrir nemendur í 8.-10. bekk allt frá árinu 1992 undir nafninu „Ungt fólk.“ Í frétt á heimasíðu ÍSÍ segir að ÍSÍ og UMFÍ hafa fengið að setja inn í…Lesa meira

Mörg mál voru samþykkt á lokametrum Alþingis fyrir sumarleyfi. Eitt þeirra var sérstaklega miðað að því að bæta stöðu þolenda heimilisofbeldis. Skilnaðarferlið verður auðveldað fyrir fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka síns eða býr á heimili þar sem barn hefur verið beitt ofbeldi. Það er Viðreisn sem hafði veg og vanda að…Lesa meira

Starfsfólk Skessuhorns er nú í sumarleyfi frá og með deginum í dag og til næsta þriðjudags. Mætt verður til vinnu að nýju miðvikudaginn 3. ágúst. Næsta blað kemur út miðvikudaginn 10. ágúst. Ef koma þarf áríðandi tilkynningum á framfæri hér á vef Skessuhorns er hægt að hringja í síma 861-3364.Lesa meira

Elkem Ísland sem rekur kísilver á Grundartanga hagnaðist um 6,4 milljarða íslenskra króna í fyrra. Þetta er langbesta rekstrarniðurstaða Elkem á síðustu sjö árum og líklega sú besta í sögu fyrirtækisins á Íslandi. Tekjur Elkem voru 2.085 milljónir norskra króna, jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna og jukust um heil 70 prósent á milli ára.…Lesa meira

Matvælastofnun hefur borist tilkynning um grun um Brucella canis bakteríusýkingu í hundi. Grunur um slíka sýkingu hefur ekki komið upp áður hér á landi. Brucella canis er súna, en súna er sjúkdómur sem getur smitast á milli dýra og manna. Tekið er fram í tilkynningunni að smit í fólk af völdum Brucella canis sé sjaldgæft.…Lesa meira