Baulan 15. júlí sl. í einkennandi veðri fyrir þennan júlímánuð.

Veðurfar í júlí afburða slæmt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur greindi frá því á Facebook síðu sinni á mánudaginn að veðurfar í júlí hafi verið undir meðallagi gott. Mánuðurinn var sólarlítill og meðalhitinn einni gráðu lægri en meðalhiti í júlí var á árunum 1991-2020. Þrátt fyrir fáa sólardaga og mánuðurinn hafi einkennst af skýjuðum dögum var ekki mikil rigning svo bændur náðu flestir að sinna heyskap.\r\n\r\nHæsta hitastig mánaðarins mældist 15,9˚C en lægra hámark hefur ekki verið síðan 1989. Sá mánuður komst að vísu í sögubækurnar fyrir sólarleysi segir Einar en töldu sólarstundirnar 77 klukkustundir í Reykjavík það ár. Í ár voru þær þó 150 en heilt yfir var lítil sól á landinu þennan júlímánuð. Laugardagurinn 30. júlí var kaldasti dagur mánaðarins og var hann á landsvísu mjög kaldur. Veðurfræðingar hafa spáð fyrir fleiri sólardögum í ágúst.",
  "innerBlocks": []
}