Nikulás Ísar og Andri að ræða málin í leiknum gegn Kormáki/Hvöt. Ljósm. Kári

Víkingur Ólafsvík og Kári með góða sigra – 2. flokkur kvennaliðs ÍA í úrslit í bikar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vesturlandsliðin Víkingur Ólafsvík og Kári unnu sína leiki í 2. og 3. deild karla í knattspyrnu í vikunni fyrir verslunarmannahelgina. Víkingur vann frábæran sigur á toppliði Njarðvíkur sem fyrir leikinn var án taps, hafði unnið tólf leiki og gert eitt jafntefli. Oumar Diouck kom heimamönnum í Njarðvík yfir á 16. mínútu en Björn Axel Guðjónsson svaraði fyrir Víking skömmu fyrir hálfleik. Hann var síðan aftur á ferðinni eftir tæpan klukkustundar leik áður en Andri Þór Sólbergsson tryggði mikilvægan sigur Víkings fimm mínútum fyrir leikslok, lokastaðan 1-3 fyrir Víking. Næsti leikur Víkings er á laugardaginn gegn Hetti/Hugin á Ólafsvíkurvelli og hefst klukkan 14.\r\n\r\nKári tók á móti Kormáki/Hvöt síðasta miðvikudag í Akraneshöllinni og vann nauman sigur 3-2. Andri Júlíusson kom Kára yfir í leiknum strax á sjöttu mínútu og Nikulás Ísar Bjarkason bætti síðan við tveimur mörkum fyrir Kára og staðan orðin ansi vænleg. Eftir tæplega klukkustundar leik minnkaði Hilmar Þór Kárason muninn fyrir gestina og var síðan aftur á ferðinni fimm mínútum fyrir leikslok. Káramenn náðu að halda þetta út og eru komnir með 20 stig eins og Kormákur/Hvöt, Augnablik og KFS í fimmta til áttunda sæti en í tveimur efstu sætunum eru KFG og Dalvík/Reynir með 28 stig. Næsti leikur Kára er á móti Dalvík/Reyni á morgun, fimmtudag, á Dalvíkurvelli og hefst viðureignin klukkan 18.\r\n\r\nÞá er ÍA komið í úrslit í bikarkeppninni í 2. flokki kvenna U20 eftir sigur á Þrótti Reykjavík í síðustu viku, 3-2. Freyja Katrín Þorvarðardóttir kom Þrótti yfir í leiknum en þær Marey Edda Helgadóttir og Ylfa Laxdal Unnarsdóttir svöruðu fyrir Skagakonur í fyrri hálfleik. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir jafnaði leikinn fyrir Þrótt á 67. mínútu en tíu mínútum síðar fékk Þróttarinn Guðrún Ólafía Þorsteinsdóttir beint rautt spjald og þær því einni færri. Það var síðan Erna Björt Elíasdóttir sem tryggði sigur ÍA og mætir Breiðablik/Augnablik í úrslitaleik miðvikudaginn 21. september klukkan 18 en ekki er enn búið að ákveða hvar úrslitaleikurinn verður.",
  "innerBlocks": []
}