{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Elkem Ísland sem rekur kísilver á Grundartanga hagnaðist um 6,4 milljarða íslenskra króna í fyrra. Þetta er langbesta rekstrarniðurstaða Elkem á síðustu sjö árum og líklega sú besta í sögu fyrirtækisins á Íslandi. Tekjur Elkem voru 2.085 milljónir norskra króna, jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna og jukust um heil 70 prósent á milli ára. Þetta kemur fram á visir.is.\r\n\r\nÍ skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins kemur fram að markaðsaðstæður hafi verið afar hagstæðar árið 2021 eftir lægð ársins 2020 og heimsmarkaðsverð á kísiljárni náð methæðum á síðari hluta ársins. Að sögn stjórnar voru há verð og stöðugur rekstur undirstöður góðs árangurs á árinu 2021. Þá segir að á fyrstu mánuðum þessa árs hafi skerðingar á raforku haft neikvæð áhrif á framleiðslu verksmiðjunnar og auk þess hafi áskoranir í flutningsmálum og hækkandi verð verið krefjandi fyrir fyrirtækið.\r\n\r\n„Þrátt fyrir það eru fjárhagslegar horfur fyrirtækisins mjög góðar árið 2022 en markaðsverð eru há, framleiðsla stöðug og stór hlutdeild er í sérvöru.“ segir í skýrslu stjórnar.\r\n\r\n \r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-55123\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/Metafkoma-Elkem-a-sidasta-ari2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}