
Gísli Laxdal Unnarsson skoraði sitt þriðja mark í Bestu deildinni í sumar á móti Breiðablik. Ljósm. Lárus Árni Wöhler
Skagamenn enn að leita að sigri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Breiðablik og ÍA mættust á mánudagskvöldið í Bestu deild karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Kópavogsvelli. Gísli Laxdal Unnarsson kom Skagamönnum óvænt yfir á 54. mínútu en á tæpum tíu mínútna kafla skoruðu Blikar þrjú mörk og gerðu út um leikinn. Þetta var fimmta tap Skagamanna í röð í Bestu deildinni og eru þeir í neðsta sætinu með átta stig eftir 15 leiki.\r\n\r\nÞað sem vakti mesta athygli í leiknum var sú ákvörðun Jóns Þórs þjálfara Skagamanna að taka út fyrirliðann og markmanninn Árna Snæ Ólafsson út úr liðinu en hann hafði spilað alla leiki ÍA í deildinni til þessa. Árni Marinó hafði á þessu tímabili aðeins leikið einn leik í Mjólkurbikarnum gegn Sindra í lok maí en Árni Marinó lék alls 13 leiki í Pepsi Max deildinni í fyrra.\r\n\r\nDaniel Ingi Jóhannesson sem er fæddur árið 2007 spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild þegar hann kom inn á í leiknum fimm mínútum fyrir leikslok. Daniel Ingi þykir mikið efni en hann er sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar fyrrum þjálfara Skagamanna og Jófríðar Maríu Guðlaugsdóttur og bróðir Ísaks Bergmanns sem leikur með FC Köbenhavn í Danmörku.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna í Bestu deildinni er næsta mánudag á Akranesvelli og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}