
Mynd af vef Veðurstofu Íslands
Aukin hætta á grjóthruni vegna jarðskjálfta
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undanfarna daga hafa landsmenn á suðvesturhorni landsins fundið fyrir tíðum jarðskjálftum sem eiga upptök sín á Reykjanesi. Stærstu skjálftarnir hafa mælst yfir 5 og hafa skjálftarnir fundist um nær allt Vesturland eða á Akranesi, í Borgarfirði, Dalabyggð og víðar. Veðurstofan bendir á að aukin hætta sé á grjóthruni á suðvesturhorninu og varast þurfi brött björg og svæði þar sem grjót getur hrunið.\r\n\r\nÁ vef Veðurstofunnar segir að kvika liggi grunnt undir yfirborði jarðar eða á um 1 km dýpi. Tvöfaldur hraði er á kvikunni borið saman við gos síðasta árs en kvikan er á svipuðum slóðum og þegar síðast gaus, í kringum Fagradalsfjall. Ýmislegt bendir til þess að mögulegt eldgos muni hafa meiri áhrif á byggð en t.d. gæti hraunið runnið í átt að Reykjanesbraut. Síðastliðinn sólarhring hefur hægt á sjálftavirkninni en í síðasta eldgosi var hverfandi skjálftavirkni síðasti fyrirboði um gosið. Teljast þess vegna líkur á eldgosi á næstu dögum eða vikum gríðarlega miklar.",
"innerBlocks": []
}