
Kolfinna Jóhannesdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík frá 1. ágúst nk. Kolfinna starfaði sem sviðsstjóri greiningarsviðs Menntamálastofnunar 2018–2022 og sérfræðingur á sviði framhaldsskólamála og teymisstjóri framhaldsskóla- og velferðarmála hjá stofnuninni 2016–2018. Hún var skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar 2011–2014 þegar hún tók við starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar sem hún gegndi til ársins 2016. Kolfinna…Lesa meira








