Fréttir

true

Ísteka riftir samningum við nokkra bændur

Í myndskeiði sem dýraverndarsamtökin Animal Welfare Foundation/ Tierschutzbund Zürich birtu í nóvember á streymisveitum sáust dæmi um ólíðandi meðferð á hryssum hjá samstarfsbændum líftæknifyrirtækisins Ísteka, sem vinnur hormón úr blóði fylfullra hryssa. Nú hefur Ísteka sent frá sér tilkynningu vegna málsins. Þar segir m.a: „Þessi meðferð á dýrunum var augljóslega brot á velferðarsamningum fyrirtækisins og…Lesa meira

true

Hátíð fer í hönd í Hólmavíkurkirkju

Einvalalið vestfirsks tónlistarfólks heldur jólatónleika Hólmavíkurkirkju föstudagskvöldið 10. desember klukkan 20. Fluttar verða margar af helstu perlum þeirrar tónlistar sem færir jólin í hjörtu landsmanna, auk þess sem gestir fá að njóta frumsaminna laga. Fram koma: Dagný Hermannsdóttir; söngur, Jón Hallfreð Engilbertsson; gítarleikur og söngur, Pétur Ernir Svavarsson; söngur og píanóleikur, Stefán Jónsson; píanóleikur og…Lesa meira

true

Opið hús eldri borgara í Miðgarði

Opið hús 60 ára og eldri verður í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit í dag, miðvikudag, klukkan 14. Katrín Rós Sigvaldadóttir, náms- og starfsráðgjafi, kemur í heimsókn og ætlar að ræða um starfslok og hvað tekur við eftir að fólk hættir á vinnumarkaðinum. Kaffiveitingar og spjall á eftir. -fréttatilkynningLesa meira

true

Aðventumót Pútthóps Hamars

Aðventumót Pútthóps Hamars í Borgarbyggð fór fram á skemmtilegum velli í klúbbhúsi Golfklúbbs Mosfellsbæjar í gær, 7. desember. Þar hafa félagar í pútthópnum æft einu sinni í viku frá 19. október. Eins og frægt er orðið hefur hópnum verið meinað að æfa í Eyjunni í Brákarey síðan í febrúar á þessu ári. Í Mosfellsbæ er…Lesa meira

true

Ríkið styður hjálparsamtök

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að veita samtals fimm milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til tíu hjálparsamtaka sem starfa hér á landi. Sú venja hefur skapast á undanförnum árum að ríkisstjórnin styrki slík samtök í aðdraganda jóla. Um er að ræða Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Íslandi, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd…Lesa meira

true

Gunnar Ásgeirsson söng Dansaðu vindur

Áttundi gluggi jóladagatals Skagamanna var opnaður í morgun. Gunnar Ásgeirsson hefur búið á Akranesi í þrjátíu ár. Honum er einnig farið að þykja vænt um Akrafjallið og telst því fullgildur Skagamaður. Hann hefur alltaf sungið mikið og hefur afar gaman af jólalögum, “jafnvel fullgaman stundum”, segir hann sjálfur. Hann flutti lagið Dansaðu vindur sem margir…Lesa meira

true

Bræður selja Bílás – elstu bílasölu landsins

Gengið hefur verið frá eigendaskiptum á Bílasölu Akraness ehf., sem rekur Bílás við Smiðjuvelli 17 á Akranesi. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1983 hafa bræðurnir Ólafur og Magnús Óskarssynir frá Beitistöðum átt fyrirtækið og unnið þar sjálfir. Kaupendur eru tveir; þeir Kristján Einarsson og Alexander Þórsson og taka þeir við rekstrinum um áramótin. Að sögn kaupendanna…Lesa meira

true

Jólalestin á ferðinni í dag í Stykkishólmi

Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms ekur um bæinn á milli klukkan 18 og 19 í dag, miðvikudaginn 8. desember og spilar á völdum stöðum til að gleðja gesti og gangandi með jólatónlist. Með í för verða jólasveinar með jólasleðann góða sem þeir afhentu bæjarbúum fyrir síðustu jól en nú er kominn tími til að koma honum fyrir…Lesa meira

true

Sameiningarviðræður að hefjast milli Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar á morgun, fimmtudag, liggur fyrir tillaga um að hefja formlegar sameiningarviðræður milli Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar. Þetta kemur fram í auglýsingu um fundinn sem birt var á heimasíðu Stykkishólmsbæjar síðdegis í gær. Þar kemur fram að óformlegur fundur hafi þegar verið haldinn með fulltrúum sveitarfélaganna. Í fundarboðinu kemur einnig fram að sveitarstjórn…Lesa meira