{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að veita samtals fimm milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til tíu hjálparsamtaka sem starfa hér á landi. Sú venja hefur skapast á undanförnum árum að ríkisstjórnin styrki slík samtök í aðdraganda jóla. Um er að ræða Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Íslandi, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Vesturlands, Rauða krossinn á Íslandi og Samhjálp.",
"innerBlocks": []
}