Í sýningarsal Bíláss á Akranesi. F.v. Alexander Þórsson, Ólafur Óskarsson, Magnús Óskarsson og Kristján Einarsson. Ljósm. mm.

Bræður selja Bílás – elstu bílasölu landsins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gengið hefur verið frá eigendaskiptum á Bílasölu Akraness ehf., sem rekur Bílás við Smiðjuvelli 17 á Akranesi. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1983 hafa bræðurnir Ólafur og Magnús Óskarssynir frá Beitistöðum átt fyrirtækið og unnið þar sjálfir. Kaupendur eru tveir; þeir Kristján Einarsson og Alexander Þórsson og taka þeir við rekstrinum um áramótin.\r\n\r\nAð sögn kaupendanna stendur ekki til að breyta rekstri bílasölunnar. Fyrirtækið er með söluumboð fyrir bíla frá Öskju og Heklu en selur auk þess bíla frá fleiri innflutningsfyrirtækjum. Þá er Bílás með umboð frá Bílaleigunni Höldi. Að jafnaði segja bræðurnir að salan sé um 350 notaðir bílar á ári og um eða yfir 50 nýir bílar. Alexander Þórsson hefur starfað á bílasölunni þetta árið og er því öllum hnútum kunnugur. Hann segist spenntur við að eignast reksturinn en tekur fram að þeir þurfa að bæta við sig starfsmanni á nýju ári. Meðeigandi hans, Kristján Einarsson, rekur hins vegar Trésmiðju Akraness í sama húsi og hyggst gera það áfram. Kristján er hins vegar ekki ókunnur rekstrinum en hann var fyrsti bílasalinn í fullu starfi hjá Bílásbræðrum árin 1984-87.\r\n\r\nÞeir Magnús og Ólafur segja að Bílasala Akraness sé elsta bílasala landsins í samfelldum rekstri. Þeir rifja það upp að á fyrstu árum í rekstrinum hafi þeir selt bílinn E-100 fyrir Bíla Berg, sem margir eldri Skagamenn muna eftir. „Sem greiðslu fyrir sölulaun á bílnum E-100 fengum við nafnið Bílasala Akraness hjá Bíla Bergi. Það var Daníel í Vogatungu sem keypti umræddan bíl og hefur átt númerið E-100 allar götur síðan,“ segja þeir. Aðspurðir um hvað nú taki við segja þeir Magnús og Ólafur að það sé óráðið. Þeir þurfi ekki að vinna frekar en þeir vilja, en Óli er 72 ára og Magnús verður sjötugur í vetur. „Það er samt aldrei að vita. Kannski verðum við bara fastagestir í kaffi hér á sölunni eða sendumst með bíla fyrir strákana. Við höfum alltaf haft einhverja lipra karla hér með okkur og kannnski grípum við þann bolta á lofti,“ segja Magnús og Ólafur Óskarssynir.",
  "innerBlocks": []
}
Bræður selja Bílás - elstu bílasölu landsins - Skessuhorn