
Úr Helgafellssveit. Ljósm. Mats Wibe Lund.
Sameiningarviðræður að hefjast milli Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar á morgun, fimmtudag, liggur fyrir tillaga um að hefja formlegar sameiningarviðræður milli Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar. Þetta kemur fram í auglýsingu um fundinn sem birt var á heimasíðu Stykkishólmsbæjar síðdegis í gær. Þar kemur fram að óformlegur fundur hafi þegar verið haldinn með fulltrúum sveitarfélaganna. Í fundarboðinu kemur einnig fram að sveitarstjórn Helgafellssveitar hafi fyrir sitt leyti samþykkt að hefja formlegar sameiningarviðræður við Stykkishólmsbæ. Í tillögunni felst að íbúar hvors sveitarfélags um sig munu greiða atkvæði um sameininguna vorið 2022 þannig að kosið verði í sameinuðu sveitarfélagi í kosningunum á næsta ári.\r\n\r\nMikið og náið samband er milli sveitarfélaganna, meðal annars um að börnum úr Helgafellssveit er kennt í Stykkishólmi. Miðað við íbúafjölda 1. desember síðastliðinn verða 1.293 íbúar í sameinuðu sveitarfélagi Stykkishólmbæjar og Helgafellssveitar. 79 eru nú búsettir í sveitinni en 1.214 í Stykkishólmi.",
"innerBlocks": []
}