Fréttir

true

Opið hús eldri borgara í Miðgarði

Opið hús 60 ára og eldri verður í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit í dag, miðvikudag, klukkan 14. Katrín Rós Sigvaldadóttir, náms- og starfsráðgjafi, kemur í heimsókn og ætlar að ræða um starfslok og hvað tekur við eftir að fólk hættir á vinnumarkaðinum. Kaffiveitingar og spjall á eftir. -fréttatilkynningLesa meira

true

Aðventumót Pútthóps Hamars

Aðventumót Pútthóps Hamars í Borgarbyggð fór fram á skemmtilegum velli í klúbbhúsi Golfklúbbs Mosfellsbæjar í gær, 7. desember. Þar hafa félagar í pútthópnum æft einu sinni í viku frá 19. október. Eins og frægt er orðið hefur hópnum verið meinað að æfa í Eyjunni í Brákarey síðan í febrúar á þessu ári. Í Mosfellsbæ er…Lesa meira

true

Ríkið styður hjálparsamtök

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að veita samtals fimm milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til tíu hjálparsamtaka sem starfa hér á landi. Sú venja hefur skapast á undanförnum árum að ríkisstjórnin styrki slík samtök í aðdraganda jóla. Um er að ræða Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Íslandi, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd…Lesa meira

true

Gunnar Ásgeirsson söng Dansaðu vindur

Áttundi gluggi jóladagatals Skagamanna var opnaður í morgun. Gunnar Ásgeirsson hefur búið á Akranesi í þrjátíu ár. Honum er einnig farið að þykja vænt um Akrafjallið og telst því fullgildur Skagamaður. Hann hefur alltaf sungið mikið og hefur afar gaman af jólalögum, “jafnvel fullgaman stundum”, segir hann sjálfur. Hann flutti lagið Dansaðu vindur sem margir…Lesa meira

true

Bræður selja Bílás – elstu bílasölu landsins

Gengið hefur verið frá eigendaskiptum á Bílasölu Akraness ehf., sem rekur Bílás við Smiðjuvelli 17 á Akranesi. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1983 hafa bræðurnir Ólafur og Magnús Óskarssynir frá Beitistöðum átt fyrirtækið og unnið þar sjálfir. Kaupendur eru tveir; þeir Kristján Einarsson og Alexander Þórsson og taka þeir við rekstrinum um áramótin. Að sögn kaupendanna…Lesa meira

true

Jólalestin á ferðinni í dag í Stykkishólmi

Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms ekur um bæinn á milli klukkan 18 og 19 í dag, miðvikudaginn 8. desember og spilar á völdum stöðum til að gleðja gesti og gangandi með jólatónlist. Með í för verða jólasveinar með jólasleðann góða sem þeir afhentu bæjarbúum fyrir síðustu jól en nú er kominn tími til að koma honum fyrir…Lesa meira

true

Sameiningarviðræður að hefjast milli Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar á morgun, fimmtudag, liggur fyrir tillaga um að hefja formlegar sameiningarviðræður milli Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar. Þetta kemur fram í auglýsingu um fundinn sem birt var á heimasíðu Stykkishólmsbæjar síðdegis í gær. Þar kemur fram að óformlegur fundur hafi þegar verið haldinn með fulltrúum sveitarfélaganna. Í fundarboðinu kemur einnig fram að sveitarstjórn…Lesa meira

true

Óbreyttar sóttvarnareglur áfram

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að framlengja óbreytta gildandi reglugerð um samkomutakmarkanir. Almennar fjöldatakmarkanir verða því áfram 50 manns en með möguleika á hraðprófsviðburðum, áfram gilda 1 metra nálægðarmörk, reglur um grímunotkun o.s.frv. Þessi ákvörðun er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að viðhalda óbreyttum takmörkunum í ljósi óvissu um þróun faraldursins,…Lesa meira

true

Sbarro tekur við af Kvikk á Akranesi

Skeljungur hf hefur hætt rekstri Kvikk on the go á Akranesi og sagt upp öllum tólf starfsmönnum verslunarinnar. Fjórir hafa verið í fullu starfi og átta í hlutastarfi. Skeljungur hf hefur ákveðið að leigja stöðina til fyrirtækisins Sbarro. Að sögn Steingríms Bjarnasonar, eiganda Sbarro á Íslandi, verður boðið upp á ferskan og alvöru ítalskan mat…Lesa meira