{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skeljungur hf hefur hætt rekstri Kvikk on the go á Akranesi og sagt upp öllum tólf starfsmönnum verslunarinnar. Fjórir hafa verið í fullu starfi og átta í hlutastarfi. Skeljungur hf hefur ákveðið að leigja stöðina til fyrirtækisins Sbarro. Að sögn Steingríms Bjarnasonar, eiganda Sbarro á Íslandi, verður boðið upp á ferskan og alvöru ítalskan mat í opnu eldhúsi auk þess að vera með sjoppu á staðnum. Þá segir Steingrímur að ætlunin sé að vera með glæsilegan ísbúðarrekstur og annars konar heitan mat eins og samlokur, pylsur og hamborgara. Einnig verður alltaf rjúkandi heitt kaffi á könnunni og segir Steingrímur að þau hlakki gríðarlega til að opna nýjan stað á Akranesi en Bensínstöðin Orkan verður áfram á svæðinu. Stefnan er að opna strax eftir áramót.",
"innerBlocks": []
}