
Jólastemningin var allsráðandi í hinum ýmsu fyrirtækjum í Ólafsvík miðvikudaginn 1. desember. Þá hafði verið áætlað að hafa Jólaþorp Snæfellsbæjar sem hefur verið í nokkur ár í félagsheimilinu Klifi þar sem fyrirtæki og félagasamtök hafa boðið upp á hinar ýmsu vörur. Ekki var hægt að halda Jólaþorpið með þeim hætti sem áður hefur verið gert.…Lesa meira








