Sölvi Gylfason, Jón Theodór Jónsson og Declan Redmond. Ljósm. Skallagrímur.

Sölvi og Declan verða áfram þjálfarar Skallagríms

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýverið var gengið frá endurráðningu Sölva Gylfasonar sem þjálfara hjá meistaraflokki Skallagríms í fótbolta, en hann hefur þjálfað liðið frá árinu 2020. Declan Redmond verður áfram aðstoðarþjálfari liðsins. „Undanfarin tvö ár hefur verið markvisst unnið að því að gefa ungum leikmönnum uppöldum hjá Skallagrími tækifæri og því er að verða til ágætur kjarni ungra leikmanna. Stefnt er að því að efla þennan hóp áfram, jafnframt því að styrkja liðið og vera með í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni í 4. deild,“ segir í tilkynningu frá Skallagrími.\r\n\r\nÞá var Jón Theodór Jónsson nýverið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Skallagríms, en Jón hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka hjá félaginu með góðum árangri. Jón mun halda áfram þjálfun auk þess að stýra starfinu.",
  "innerBlocks": []
}
Sölvi og Declan verða áfram þjálfarar Skallagríms - Skessuhorn