
Bjarni Ólafsson AK kemur með fyrstu loðnuna. Ljósm. Austurfrétt/SigAð.
Loðna farin að veiðast norðan við land
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bjarni Ólafsson AK kom með fyrsta loðnufarminn á þessari vertíð inn til Neskaupstaðar skömmu fyrir hádegi í gær. Þar gleðjast menn yfir að vertíðin sé hafin en eru súrir yfir að þurfa að keyra fiskimjölsverksmiðjuna á olíu. Bjarni kom með alls 1600 tonn, sem fengust í átta hollum 40-50 mílur norður af Melrakkasléttu. Loðnuveiðiflotinn er allur á þeim slóðum, í sérstöku hólfi úti af landgrunnskantinum og markast af Langanesi í austri og Eyjafirði í vestri. Á þessum slóðum er heimilt að veiða loðnu með flotvörpu, en ráðherra gaf út reglugerð þess efnis í síðustu viku. Það varð til þess að skipin gátu loks farið að veiða.\r\n\r\n„Við vorum búnir að eyða töluverðum tíma í að leita að loðnu áður en leyfið var gefið. Við höfðum náð einhverjum 30 tonnum fyrir vestan land, en það var bara smáloðna. Það er eitthvað af loðnu á þessu svæði sem skipin eru á núna en hún er dreifð og djúpt. Veiðin er þokkaleg, ekkert mok, þótt hún aukist dag frá degi. Þetta eru engar ógurlegar göngur enn. Nær allt veiðist á daginn og þar sem birtan er stutt þá skiptir að vera á réttum stað þegar dagur rennur,“ segir Þorkell Pétursson skipstjóri í samtali við Austurfrétt, héraðsfréttablað Austfirðinga.\r\n\r\nLaust fyrir klukkan þrjú í gær var búið að landa um 400 tonnum af farminum. Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri, segir vertíðina fara ágætlega af stað því loðnan sé þokkalega vel haldin. Allur farmurinn verður bræddur í annað hvort mjöl eða lýsi. Hann segir allt klárt í bræðslunni sem hafi verið í fullum gangi síðan í sumar. Galli sé þó að fiskimjölsverksmiðjurnar verði keyrðar á olíu. „Bræðslurnar eru á ótryggri orku sem er skerðanleg. Vatnsbúskapurinn er víst þannig að það vantar rafmagn og þess vegna var það gefið út í síðustu viku að við yrðum skertir fyrir áramót. Í morgun kom svo í ljós að ótrygg orka yrði tekin af öllum verksmiðjunum í kvöld,“ segir Hafþór.\r\n\r\nBörkur, Beitir og Barði eru meðal þeirra skipa sem eru á miðunum og eru komin með ágætan afla. Því er útlit fyrir fleiri loðnufarma á næstunni þótt alltaf sé áfangi þegar sá fyrsti berst, einkum eftir slök ár en engin loðna veiddist 2019 og 2021 og það sem kom á land í byrjun árs var með minna móti. Nú þurfa íslensku skipin hins vegar að hafa sig við til að ná ríflega 626 þúsund tonna kvóta. „Það er gaman að fá fyrsta farminn fyrir áramót,“ segir Jón Mar Jónsson, yfirmaður landvinnslu hjá Síldarvinnslunni í samtali við Austurfrétt.",
"innerBlocks": []
}