{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Jólastemningin var allsráðandi í hinum ýmsu fyrirtækjum í Ólafsvík miðvikudaginn 1. desember. Þá hafði verið áætlað að hafa Jólaþorp Snæfellsbæjar sem hefur verið í nokkur ár í félagsheimilinu Klifi þar sem fyrirtæki og félagasamtök hafa boðið upp á hinar ýmsu vörur. Ekki var hægt að halda Jólaþorpið með þeim hætti sem áður hefur verið gert. Eigendur nokkurra fyrirtækja á svæðinu létu það ekki stoppa sig og auglýstu kvöldopnun þennan dag. Buðu þeir öðrum fyrirtækjum og félagasamtökum aðstöðu hjá sér þar sem þeir gátu verið með það sem þeir höfðu upp á að bjóða. Heppnaðist þetta nýja fyrirkomulag mjög vel og margir sem lögðu leið sína í verslanir þetta kvöld og voru mörg fyrirtækin með alls kyns tilboð og afslætti af þessu tilefni. Siggi Hösk og Olga Guðrún Gunnarsdóttir fóru á milli staða og sungu og spiluðu jólalög fyrir gesti og gangandi. Það gerði Jón Haukur Hilmarsson einnig og vakti það mikla lukku. Höfðu margir bæjarbúar á orði að vonandi væri þetta fyrirkomulag komið til að vera, það væri svo gaman að geta farið svona á milli fyrirtækja, skoðað hvað er í boði, hlustað á fallega jólatóna og hitta fólk.",
"innerBlocks": []
}
Lifandi stemning í verslunum í stað Jólaþorpsins - Skessuhorn