Fréttir

true

Matarveislan er hafin

Nú er Matarveisla Vesturlands hafin og styttist í Matarhátíð á Hvanneyri, sem verður haldin laugardaginn 13. nóvember. Matarveislan stendur yfir allan nóvembermánuð og geta allir tekið þátt sem vilja bjóða upp á matartengda viðburði í mánuðinum. Viðburðirnir geta verið hvað sem er sem tengist mat eða matarhefð, til dæmis tilboð, popup viðburðir, fræðsla eða annað…Lesa meira

true

Hallbjargartónleikum frestað

Í kvöld ætlaði Rótarýklúbbur Akraness að standa fyrir minningartónleikum um Hallbjörgu Bjarnadóttur í sal Tónlistarskólans á Akranesi. Tónleikunum hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma vegna bylgju Covid-19 sem nú gengur yfir í bæjarfélaginu.  Lesa meira

true

Stolið úr gamla Heiðarskólahúsinu

Á miðvikudag í síðustu viku var farið inn í fyrrum skólahús Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit og tölvu að verðmæti 1,5 milljón stolið. Annar tölvubúnaður í rýminu var látinn ósnertur. Engin ummerki sáust á vettvangi og virðast hinir óprúttnu aðilar hafa komist yfir lykla að húsnæðinu. Þegar upptökur úr öryggismyndavélum voru skoðaðar þekktust aðilarnir og gat lögregla…Lesa meira

true

Norðurál fjármagnar 15 milljarða króna steypuskála

Norðurál og Arion banki hafa skrifað undir samning um græna fjármögnun á nýrri framleiðslulínu í steypuskála Norðuráls á Grundartanga. Um er að ræða fjárfestingaverkefni sem hleypur á um 120 milljónum dala, eða um 15 milljörðum króna. Verkefnið er að fullu fjármagnað hér á landi og vegna þess hve jákvæð umhverfisáhrifin eru hefur það fengið svokallaða…Lesa meira

true

Höfði lokar fyrir allar heimsóknir fram yfir helgi

„Í ljósi stöðunnar á smitum vegna COVID-19 á Akranesi, höfum við stjórnendur Höfða, ákveðið að loka Höfða fyrir öllum heimsóknum fram yfir helgi. Staðan verður endurmetin á mánudaginn. Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð. Við þökkum kærlega fyrir þann skilning…Lesa meira

true

Heima-Skaga hátíðinni frestað

Tónlistarhátíðinni Heima-Skaga sem halda átti um helgina hefur verið frestað. Aðstandendur hátíðarinnar, Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir, hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: „Í ljósi aðstæðna dettur okkur ekki í hug að halda Heima-Skaga hátíðina um helgina eins og stóð til. Okkur þykir það auðvitað hrikalega leiðinlegt þar sem allt var klárt og ekkert…Lesa meira

true

Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir á landamærum

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna Covid-19, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Reglugerðin gildir til 15. janúar 2022. Ástæðan er mikil fjölgun smita innanlands að undanförnu. Sóttvarnalæknir bendir á að faraldurinn sé í töluverðum vexti, þeim fari fjölgandi sem veikjast alvarlega og faraldurinn sé farinn að hafa íþyngjandi áhrif…Lesa meira

true

Banaslys í Kjósinni

Banaslys varð síðdegis í gær á Hvalfjarðarvegi í Kjós, á móts við Félagsgarð. Karlmaður á fertugsaldri lést eftir að bifreið sem hann var farþegi í fór út af. Eldur kom upp í bifreiðinni. Ökumaður var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús. Flughált var á þessum slóðum og lenti annar bíll út af á svipuðum slóðum. Fjölmennt…Lesa meira

true

Sjöundi tapleikur Skallagríms

Skallagrímur er enn að leita að sínum fyrsta sigri eftir tap gegn Grindavík syðra í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímskonur skoruðu fyrstu tvö stigin í gær og var það í eina skiptið sem þær voru yfir í leiknum. Grindavík tók strax frumkvæðið, komst í 9:4 og staðan eftir fyrsta leikhlutann 19:10. Skallagrímur…Lesa meira

true

Héldu málþing og atvinnusýningu í Hjálmakletti

Síðastliðinn laugardag stóð Rótarýklúbbur Borgarness fyrir atvinnusýningu í Hjálmakletti í Borgarnesi með þátttöku um þrjátíu fyrirtækja og stofnana. Dagskráin hófst að morgni með málþingi og pallborðsumræðum þar sem til umræðu var Matvælalandið Ísland – loftslagsmál og kolefnisspor út frá ólíkum vinklum. Frummælendur voru Guðmundur I. Guðbrandsson umhverfisráðherra, Haraldur Benediktsson alþingismaður, Kristján Oddsson bóndi á Neðra-Hálsi…Lesa meira