Matarveislan er hafin

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er Matarveisla Vesturlands hafin og styttist í Matarhátíð á Hvanneyri, sem verður haldin laugardaginn 13. nóvember. Matarveislan stendur yfir allan nóvembermánuð og geta allir tekið þátt sem vilja bjóða upp á matartengda viðburði í mánuðinum. Viðburðirnir geta verið hvað sem er sem tengist mat eða matarhefð, til dæmis tilboð, popup viðburðir, fræðsla eða annað skemmtilegt. Nú þegar hafa 25 aðilar skráð viðburð á viðburðadagatalið Veisla á Vesturlandi og enn bætast við skemmtilegir viðburðir. Þá hafa 14 aðilar skráð þátttöku í matarmarkaði á Hvanneyri þar sem verður hægt að finna gómsætan sælkeramat frá Vesturlandi. Þá verða veittar viðurkenningar Asksins á Matarhátíðinni á Hvanneyri og enn er hægt að tilnefna verðuga aðila til 8. nóvember á askurinn.is.\r\n\r\nTil að fylgjast með matartengdum viðburðum á Vesturlandi í nóvember er hægt að skoða viðburðadagatal á matarhatid.is.",
  "innerBlocks": []
}
Matarveislan er hafin - Skessuhorn