{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tónlistarhátíðinni Heima-Skaga sem halda átti um helgina hefur verið frestað. Aðstandendur hátíðarinnar, Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir, hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu:\r\n\r\n„Í ljósi aðstæðna dettur okkur ekki í hug að halda Heima-Skaga hátíðina um helgina eins og stóð til. Okkur þykir það auðvitað hrikalega leiðinlegt þar sem allt var klárt og ekkert eftir nema bara segja: Nú má partíið byrja! Við viljum þakka húseigendum, tónlistarfólki, miðakaupendum, styrktaraðilum og öðrum sem hafa komið að undirbúning hátíðarinnar kærlega fyrir áhugann og velvilja í garð Heima-Skaga. Við erum alls ekki hætt – sjáumst bara á Heima-Skaga 2022 að ári, en hugsanlega og vonandi náum við að halda Heima-Skaga Barnanna áður en árið er liðið. Það verður þá auglýst síðar.“\r\n\r\nÞeir sem eru búnir að kaupa miða fá póst frá Tix.is varðandi endurgreiðslu. „Okkur skilst að það sé líka hægt að geyma miðana þar til næst. Í lokin sendum við íbúum Akraness bata- og baráttukveðjur og óskum þeim góðrar heilsu. Þetta er glatað ástand en áfram og upp – það er það eina sem er í boði.\r\n\r\nÁ myndinni eru blikkararnir sem voru í miklu Heima-Skaga stuði alveg þangað til núna í morgun.\r\n\r\n<em>Með kveðju Óli P. og Hlédís.“</em>",
"innerBlocks": []
}