
Afstöðumynd sem sýnir staðsetningu hins nýja steypuskála á Grundartanga.
Norðurál fjármagnar 15 milljarða króna steypuskála
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Norðurál og Arion banki hafa skrifað undir samning um græna fjármögnun á nýrri framleiðslulínu í steypuskála Norðuráls á Grundartanga. Um er að ræða fjárfestingaverkefni sem hleypur á um 120 milljónum dala, eða um 15 milljörðum króna. Verkefnið er að fullu fjármagnað hér á landi og vegna þess hve jákvæð umhverfisáhrifin eru hefur það fengið svokallaða græna fjármögnun hjá bankanum.\r\n\r\nÍ tilkynningu sem fyrirtækin sendu frá sér kemur fram að ný framleiðslulína geri Norðuráli kleift að vinna fleiri og verðmætari vörur úr því áli sem unnið er í álveri fyrirtækisins. Framleiddar verða álstangir til að mæta mikilli eftirspurn frá evrópskum viðskiptavinum, en stangirnar verða nýttar í vörur eins og bíla, flugvélar, byggingar og raftæki. Aukið vöruframboð styrki jafnframt vörumerki Norðuráls, Natur-AlTM, en kolefnisspor þess er samkvæmt tilkynningunni með því lægsta í heimi. Þegar framleiðslan hefst verður langstærstur hluti þess áls sem Norðurál framleiðir virðisaukandi vara; álstangir og álblöndur.\r\n\r\nMikil eftirspurn er nú eftir áli í Evrópu. Málmurinn er lykilefni við framleiðslu t.d. rafbíla, sólarrafhlaða, flugvéla og umhverfisvænna bygginga. Álstangir eru verðmætari en hleifar sem steyptir eru í núverandi steypuskála Norðuráls. Með framleiðslu álstanga er Norðurál því að færa sig nær viðskiptavinum sínum og jafnframt færa verðmætaaukninguna til Íslands. Þá kemur fram í tilkynningunni að ekki sé um að ræða aukningu á álframleiðslu heldur verði álið unnið áfram og verðmeiri afurð en áður búin til en álstangir eru verðmætari en hleifar sem steyptir eru í núverandi steypuskála. Með nýrri framleiðslulínu sparast umtalsverð orka í steypuferlinu eða um 40% auk þess sem útflutningstekjur Norðuráls aukast um yfir fjóra milljarða á ári. Byggingarframkvæmdir munu skapa um 100 störf á byggingartíma, en þegar við gangsetningu nýju framleiðslulínunnar skapast um 40 störf til frambúðar hjá fyrirtækinu.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48579\" align=\"alignleft\" width=\"166\"]<img class=\"wp-image-48579\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Nordural-fjarmagnar_1-600x407.jpg\" alt=\"\" width=\"166\" height=\"112\" /> Ásgeir Reykfjörð aðstoðarbankastjóri Arion banka og Sigrún Helgadóttir framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga við undirritun samnings.[/caption]\r\n\r\nSigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls að Grundartanga, segir að það væri sönn ánægja að geta tekið þetta skref að nýju framleiðslulínunni. „Með því að nýta endurnýjanlega raforku til að vinna álið áfram á Íslandi verða til aukin verðmæti á Íslandi og aukin verðmæti verða eftir á Íslandi. Við erum með þessu bæði að stuðla að minni orkunotkun og minni losun gróðurhúsalofttegunda í álframleiðslunni. Það er til marks um það hversu jákvæð umhverfisáhrif verkefnisins eru að lánveitingin fellur undir græna fjármálaumgjörð Arion banka.“",
"innerBlocks": []
}