Fréttir

true

Litið við í verslun í 177 ára gömlu húsi í Ólafsvík

Pakkhúsið í Ólafsvík er eitt af elstu húsum á Snæfellsnesi og á sér ríka sögu af kaupmennsku og verslun. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni á dögunum á Snæfellsnesi og rak augun í þetta svarta fallega hús sem staðsett er í hjarta Ólafsvíkur. Hjónin Rut Ragnarsdóttir og Heimir Berg Vilhjálmsson reka þar í dag verslunina Útgerðina…Lesa meira

true

Að aflokinni Northern Wave hátíðinni í Rifi

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave var haldin í þrettánda skiptið um síðustu helgi í Frystiklefanum á Rifi. Að sögn Daggar Mósesdóttur, stjórnanda hátíðarinnar, hefur aldrei áður verið boðið upp á jafn stóra tónleikaveislu en nú spiluðu bæði Reykjavíkurdætur og Vök. Fyrirtæki á svæðinu styrktu tónleikana og buðu bæjarbúum í Snæfellsbæ og Grundarfirði frítt á þá. Hátíðin…Lesa meira

true

Eigendur 1919 hússins í Borgarnesi gera hið sögufræga hús upp

Eitt mest áberandi íbúðarhús í Borgarnesi hefur síðustu ár tekið stakkaskiptum, til hins betra. Húsið, sem var í niðurníðslu og í mikilli þörf fyrir endurbætur, stendur við aðalgötuna í Borgarnesi og er nú í eigu Louise Bassigny. Frá árinu 2018 hafa Louise og Bogi Örn Emilsson maki hennar unnið hörðum höndum við að koma framtíðar…Lesa meira

true

Heilsusetrið Mystik tekið til starfa á Akranesi

Þær Anna Guðnadóttir og Erla Rut Kristínardóttir opnuðu nú í byrjun hausts heilsusetrið Mystik við Sunnubraut 13 á Akranesi en þær höfðu áður verið að vinna saman með litla stofu í Reykjavík. Þær fengu til liðs við sig Sif Agnarsdóttur og Gunnar Hallberg og opnuðu fjórar snyrti- og heilsustofur í setrinu; snyrtistofuna Mjöll, nuddstofuna Zentai,…Lesa meira

true

Vökudagar að hefjast á Akranesi

Vökudagar hefjast formlega á Akranesi á morgun, fimmtudag, og verður setningarathöfnin á Byggðasafninu í Görðum klukkan 18:00. Þar verða meðal annars afhent menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2021. Árbók Akurnesinga hlaut verðlaunin á síðasta ári. Að sögn Sigrúnar Ágústu hjá Akraneskaupstað er mikil stemning fyrir hátíðinni, bæði meðal barna og fullorðinna og þátttakan góð. Meðal barnanna er spenningurinn…Lesa meira

true

Faraldurinn heldur í sókn

Nýgengi smita innanlands af Covid-19 er nú 232,1 á hverja 100 þúsund íbúa og er faraldurinn í sókn. Samkvæmt Covid.is eru nú 43 í einangrun á Vesturlandi og 240 að auki í sóttkví. Ekki er tilgreint hvar í landshlutanum smitin eru, en þó liggur fyrir, samkvæmt upplýsingum á vef Dalabyggðar, að 17 þessara smita eru…Lesa meira

true

Körfuboltavöllur að verða til

Uppbygging körfuboltavallar á lóð Grunnskólans í Stykkishólmi gengur vel en það verkefni er þriðji áfangi í uppbyggingu skólalóðarinnar. Völlurinn er upphitaður 28×15 metrar að stærð með tveimur stórum körfum og fjórum minni. „Þetta verkefni er vel við hæfi í ljósi þeirra áherslna okkar um eflingu körfuboltans í Stykkishólmsbæ,“ segir Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar í…Lesa meira

true

H veitingar taka við Food Station

Í gær var formlega gengið frá því að H Veitingar taka við rekstri Food Station eða Fóðurstöðvarinnar í Borgarnesi af Kaupfélagi Borgfirðinga. Nýr matseðill tekur gildi á morgun, fimmtudag, og mun í tilefni þess söngvarinn Eyjólfur Kristjánsson, eða Eyfi, skemmta gestum fram á kvöld. Kaldur verður á krana og kynntar verða spennandi nýjungar.Lesa meira

true

Aðgengi að bílastæði lokað

Þessa dagana er að hefjast vinna við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum á Akranesi. Í fyrsta áfanga mun Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar sjá um gröft fyrir mannvirkinu og breytingar á lögnum í jörðu ásamt því að girða af vinnusvæðið. Við þá framkvæmd mun allt bílastæðið framan við innganginn að sundlauginni verða lokuð almenningi. Einnig munu gönguleiðir að…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á nýliðakynningu slökkviliðsins

Í gærkvöldi stóð Slökkvilið Borgarbyggðar fyrir kynningu á starfseminni. Slökkviliðið þarf að fjölga í hópnum til að ná að fullmanna allar starfsstöðvar og var því vonast eftir að fá nokkra áhugasama með að bjóða upp á kynningu. Mætingin fór hins vegar fram úr björtustu vonum slökkviliðsins, en alls mættu 32 á kynninguna. Bjarni Kristinn Þorsteinsson…Lesa meira