Fréttir

ÍA keppir í Mjólkurbikarnum í kvöld

Skagastelpur keppa við Fylki í 8-liða úrslitum í Mjólkurbikar kvenna í kvöld á Akranesvelli. Allir leikir ÍA í bikarnum til þessa hafa verið spennandi og því má búast við hörkuleik liðanna í kvöld. Í 16-liða úrslitum lögðu ÍA stúlkur Þrótt R í miklum markaleik, 3-2, og þar á undan  slógu þær FH úr keppni í…Lesa meira

true

Talsverð hreyfing á fylgi stjórnmálaflokka

Dagana 25.- 27. júní síðastliðna vann markaðsfyrirtækið Zenter könnun fyrir Fréttablaðið á fylgi stjórnmálaflokkanna. Samkvæmt henni er talsverð hreyfing á fylgi milli flokka frá síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur með 22,6% og tapar fylgi frá síðustu könnun. Píratar mælast næststærsti stjórnmálaflokkurinn, bæta við sig rúmum tveimur prósentum frá síðustu könnun og fara úr 13% upp…Lesa meira

true

Skagaverk bauð lægst í skólaakstur fyrir Hvalfjarðarsveit

Nýverið voru hjá Ríkiskaupum opnuð útboð í skólaakstur fyrir Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, alls fimm akstursleiðir með grunnskólabörn. Þrír buðu í tvær akstursleiðanna, en tveir í þrjár þeirra. Skagaverk átti lægsta boð í allar akstursleiðirnar fimm, þ.e. A-leið á Hvalfjarðarströnd, B-leið Svínadalsleið, C-leið Akrafjallsleið Austur, D leið Akrafjallsleið Vestur og Melasveitarleið. Verð Skagaverks pr. ekinn kílómeter…Lesa meira

true

Víðtækt samstarf Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar

Akraneskaupstaður og Hvalfjarðasveit hafa gert með sér samninga um félagsþjónustu, barnavernd og málefni fatlaðra ásamt rekstri Tónlistarskólans á Akranesi. Í gær undirrituðu Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi og Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit tvo samninga. Annars vegar samning um umsýslu mála innan félagsþjónustu, barnaverndar og málefni fatlaðra og hins vegar áframhaldandi samning um…Lesa meira

true

Skallagrímur heldur áfram að tapa

Ekki náðu Skallagrímsmenn að knýja fram sigur er þeir fengu Kórdrengi í heimsókn í Borgarnes í gærkvöldi. Kórdrengir voru áberandi meira með boltann í leiknum og sóttu stöðugt að heimamönnum alveg frá fyrstu mínútu. Yohance Marshall skoraði fyrsta mark gestanna á fjórðu mínútu. Stuttu seinna urðu Skallarnir fyrir því óláni að skora sjálfsmark og voru…Lesa meira

true

Með hjólbörurnar við Kirkjufell

Hugi Garðarsson hefur á liðnum vikum verið á hringferð um landið til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Ýtir hann á undan sér hjólbörum þar sem er að finna allan hans viðlegubúnað. Á ferð sinni hyggst hann heimsækja 70 sveitarfélög og ganga samtals á fjórða þúsund kílómetra. Hugi var á ferðinni í Grundarfirði fyrir helgina þar sem Kolbrún…Lesa meira

true

Héldu kveðjumessu í Stafholtskirkju

Síðastliðinn sunnudag var haldin kveðjumessa í Stafholtskirkju í Borgarfirði. Hjónin sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson og sr. Elínborg Sturludóttir predikuðu og þjónuðu fyrir altari um leið og þau kvöddu söfnuð sinn. Séra Jón Ásgeir hefur þjónað söfnuðum Stafholts, Hvamms og Norðtungu síðasta árið og leysti auk þess séra Þorbjörn Hlyn Árnason af síðasta hálfa árið í…Lesa meira

true

Mælir með að taka að sér skiptinema

Bjarney Guðbjörnsdóttir og fjölskylda hennar á Akranesi hefur hýst skiptinema tvisvar á síðustu sjö árum og tekið með opnum örmum á móti nemendum inn á heimilið sitt og leyft þeim að vera hluti af fjölskyldunni sinni. Að sama skapi fá nemendurnir að kynnast því hvernig er að lifa og búa á Íslandi í eitt ár.…Lesa meira

true

Stórsýning sjötíu listamanna víða á Snæfellsnesi

Listsýningin „Nr 3 – Umhverfing“ var opnuð með formlegum hætti um liðna helgi og verður opin fram í byrjun september. Á henni er að finna verk eftir sjö tugi listamanna sem allir eiga rætur eða tengingu við Snæfellsnes. Það sem gerir sýninguna óvenjulega er að sýningarstaðirnir eru fimmtán talsins víðsvegar um Snæfellsnes. Fjölmargir ávörpuðu gesti…Lesa meira

true

Axelsbúð endurvakin við Merkigerði

Margir muna eftir lágreistu byggingavöru- og veiðarfæraversluninni Axelsbúð á Akranesi sem sem rekin var frá 1942 til 2005 við Suðurgötu 7-9 í skjóli HB húsanna. Sama ár og rekstri var hætt var Axelsbúð rifin og hluta innréttinga og hinum fræga rauða kókkæli komið fyrir á Byggðasafninu í Görðum. Eftir að rekstri Axelsbúðar var hætt fór…Lesa meira