Fréttir

true

Jafntefli í bragðdaufum leik

Víkingur Ó. gerði jafntefli gegn botnliði Magna á Grenivíkurvelli um helgina í níundu umferð fyrstu deildar karla í fótbolta. Vindurinn í Grenivík gerði leikmönnum erfitt fyrir að ná upp almennilegu spili stóran hluta af leiknum en boltinn skiptist nokkuð jafnt á milli liðanna án þess þá að þau sköpuðu sér einhver almennileg marktækifæri. Markalaust var…Lesa meira

true

Sem minnstar tafir verði á breikkun Vesturlandsvegar

Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum í liðinni viku bókun í tengslum við fyrirhugað umhverfismat á Vesturlandsvegi um Kjalarnes, en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum telur Skipulagsstofnun að breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Slíkt mun fela í sér verulegar tafir á framkvæmdum, líklega að minnsta kosti um eitt…Lesa meira

true

Loksins dreifir Egill Skallagrímsson silfri sínu yfir þingheim

Guðni Ágústsson fer árlega í Þingvallagöngu og segir í henni frá fornum köppum sögualdar. Fimmtudagskvöldið 4. júlí næstkomandi verður hann ásamt fríðu föruneyti á Þingvöllum og fjallar að þessu sinni um Egil Skallagrímsson. „Búist er við að loksins dreifi Egill silfri sínu yfir þingheim,“ segir Guðni. Gangan hefst við Hakið klukkan 20 og gengið þaðan…Lesa meira

true

Laxinn var fljótur að ganga í Norðurá eftir að tók að rigna

Eftir afar dræma byrjun í laxveiðinni í Norðurá í Borgarfirði er betri tíðar að vænta fyrir veiðimenn. Eftir að rigna tók í héraðinu síðari hluta júní sáust kröftugar göngur laxa á neðsta svæði árinnar vaða uppeftir. Þrátt fyrir að ekki hafi mikið verið búið að rigna þá var ótrúlegt hvað laxinn var fljótur að sækja…Lesa meira

true

ÍA stúlkur úr leik í bikarkeppninni

ÍA er dottið úr Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir að hafa tapað gegn Fylki í 8-liða úrslitum á Akranesvelli á föstudagskvöldið. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og var jafnræði með þeim í byrjun, en það átti eftir að breytast. Á 17. mínútu var dæmt víti á Skagastúlkur. Ída Marín Hermannsdóttir fór á punktinn og…Lesa meira

true

Varmalandsmeyjar fyrstar til að nýta Hótel Varmaland

Í lok síðustu viku kom vaskur hópur Varmalandsmeyja saman á nýju Hótel Varmalandi í Stafholtstungum. Þetta var hópur 29 kvenna sem útskrifuðust frá Húsmæðraskólanum á Varmalandi vorið 1959 en með þeim í för voru 17 makar. Hópurinn gisti í tvær nætur og fór auk þess skoðunarferð um Borgarfjörð. Glatt var á hjalla hjá hópnum eins…Lesa meira

true

Snæfellskar kvenfélagskonur skemmtu sér saman

Konur í Kvenfélagasambandi Snæfellsness- og Hnappadalssýslu hittust að venju á 19. júní til að gera sér glaðan dag og halda uppá kvennréttindadaginn. Að þessu sinni sáu konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur um boðið. Buðu þær upp á ljúffengan mat og drykk í Safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju þangað sem á milli fimmtíu og sextíu konur frá kvenfélögum innan sambandsins…Lesa meira

true

Litla hafmeyjan sýnd á morgun í Skallagrímsgarði

Þrettánda sumarið í röð leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og ferðast með nýja fjölskyldusýningu um landið þvert og endilangt. Í sumar er það Litla hafmeyjan sem syndir um landið og gleður landsmenn á öllum aldri með ævintýrum sínum. Hópurinn verður í Borgarnesi á morgun, laugardaginn 29. júní kl. 11:00 í Skallagrímsgarði. Miðaverð er 2500…Lesa meira

true

Nýr lögreglubíll í Borgarnesflotann

Á föstudaginn tók Lögreglan á Vesturlandi í notkun nýjan Volvo lögreglubíl sem staðsettur verður í Borgarnesi. Bíllinn sem um ræðir leysir af hólmi bíl sem ekinn er nærri hálfa milljón kílómetra.Lesa meira