Fréttir

true

Vegir víða lokaðir

Mjög hvöss norðaustanátt er nú um allt vestanvert landið og appelsínugul veðurviðvörun í gildi. Vegir eru lokaðir um Kjalarnes, Fróðárheiði, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á sunnanverðu Snæfellsnesi er ófært. Annars er snjóþekja og þæfingar víða á vegum. Flughálka er í Álftafirði.Lesa meira

true

Þétt raðað vatnslitamyndum á veggjum Safnahúss

Síðastliðinn laugardag var opnuð stór sýning vatnslitamynda í Hallsteinssal Safnahússins í Borgarnesi. Verkin gerðu átta konur sem eiga það meðal annars sameiginlegt að hafa bakgrunn úr námi við Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell. Þá hafa þær allflestar tengingu við Borgarfjörð og því var þessi sýningarstaður valinn. Þær halda auk þess hópinn og hittast vikulega til…Lesa meira

true

Félagsmiðstöðin Arnardalur á Akranesi fjörutíu ára

Í gær, sunnudaginn 12. janúar, voru rétt 40 ár frá því stofnað var til félagsmiðstöðvarinnar Arnardals á Akranesi, en starfsemin heyrir í dag undir Frístundamiðstöðina Þorpið. Afmælisins verður minnst með ýmsum viðburðum allt þetta ár. Á heimasíðu Þorpsins er farið létt yfir söguna. Þar segir m.a. að í 28 ár og tuttugu daga hafi Arnardalur…Lesa meira

true

Gestirnir of stór biti

Snæfellingar máttu játa sig sigraða á heimavelli gegn Hetti þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Gestirnir frá Egilsstöðum höfðu undirtökin allan leikinn og sigruðu að lokum örugglega, 68-93. Höttur byrjaði betur og skoraði fyrstu níu stig leiksins en Snæfellingar fundu sig ekki í fyrsta leikhluta. Mest höfðu gestirnir 15 stiga…Lesa meira

true

Námskeiðskvöldi í Snorrastofu frestað

“Vegna veðurútlits mánudaginn 13. janúar, verður námskeiðskvöldi um Sturlu Þórðarson og Sturlungu, sem vera átti í Reykholti, frestað. Nánar tilkynnt síðar,” segir í tilkynningu.  Lesa meira

true

Háspenna í Hólminum

Snæfell beið lægri hlut gegn Keflavík, 75-84, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi og fengu áhorfendur æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Gestirnir höfðu heldur yfirhöndina í upphafi og leiddu með sex stigum um miðjan fyrsta leikhulta. Þá tóku Snæfellskonur góða…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun fyrir allt Vesturland síðdegis

Veðurfræðingar benda á að spá fyrir lægð sem gengur inn á landið í dag boðar enn meira hvassviðri en spáð hafði verið í gær. Appelsínugul viðvörun gildir fyrir Faxaflóasvæðið frá klukkan 16 í dag og fram á nóttina, en veðrið mun vara lengur á Breiðafjarðarsvæðinu. Faxaflóasvæðið: „Norðaustan 20-28, hvassast á Snæfellsnesi með vindhviðum yfir 40…Lesa meira

true

Reglugerð vegna þjónustu sjálfstæðra sjúkraþjálfara

Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem tryggir endurgreiðslur sjúkratrygginga vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Reglugerðin tók gildi 12. janúar síðastliðinn. Endurgreiðslur skulu miðast við gjaldskrá sem Sjúkratryggingar Íslands setja. Meðan sjúkraþjálfarar hækka ekki verðskrá sína umfram gjaldskrá stofnunarinnar verður hlutfall endurgreiðslu til sjúklinga það sama og verið hefur.Lesa meira

true

Skoða samgöngumál við endurskoðun aðalskipulags

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar í liðinni viku var tekin umræðu um endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022. Í bókun segir að fjallað hafi verið um samgöngumál. „Nefndin telur að skoða þurfi legu stofnvega og hringveg um sveitarfélagið í samvinnu við samgöngu- og sveitastjórnarráðneytið.“ Guðmundur Freyr Kristbergsson formaður nefndarinnar segir í samtali við Skessuhorn að í…Lesa meira

true

Mótmæla breytingum um fjarlægðarmörk sjókvíaeldis

„Landssamband veiðifélaga mótmælir harðlega þeirri fyrirætlan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að fella brott ákvæði gildandi fiskeldisreglugerðar um bann við sjókvíaeldi á friðunarsvæði við ósa laxveiðiáa. Ráðherra hefur haldið því fram að lögfesting áhættumats erfðablöndunar tryggi vernd laxastofna með sama hætti og reglugerðarákvæðið hefur gert allt frá því það var sett árið 1988. Það er fyrirsláttur,“ segir…Lesa meira