Fréttir

true

Blásið til íbúaþings á Akranesi um atvinnumál

Akraneskaupstaður efnir í næstu viku til íbúaþings þar sem atvinnulíf á Akranesi verður til umræðu. Markmið þingsins er að fá íbúa og fyrirtækjaeigendur að borði og ræða uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi með sérstakri áherslu á Breið og nágrenni, í samstarfi við Brim og fleiri fyrirtæki. „Metnaður bæjarins er að byggja upp öflugt atvinnulíf á Akranesi…Lesa meira

true

Samþykkt að kanna hug til sölu ljósleiðarans

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær var samþykkt erindi þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða undirskriftasöfnun í Hvalfjarðarsveit þar sem óskað verði eftir almennri atkvæðagreiðslu vegna ákvörðunar sveitarstjórnar um sölu ljósleiðarakerfis í eigu Hvalfjarðarsveitar. Samþykkt var á fundinum að undirskriftasöfnun skuli hefjast 27. janúar nk. og verða lokið 24. febrúar nk. Sveitarstjóra var falið að…Lesa meira

true

Mikið framkvæmdaár að baki í Stykkishólmi

Töluvert var um framkvæmdir á vegum Stykkishólmsbæjar á síðasta ári. Í nýjárspistli sem Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri ritar á heimasíðu bæjarins segir hann framkvæmdir við skólalóðina hafa byrjað í júní og gengið vel. „Fyrsta áfanga verksins er lokið og þ.m.t frágangi á bílaplaninu sem heppnaðist vel og m.a. mikil ánægja meðal foreldra með nýju sleppistæðin…Lesa meira

true

Erlendir ríkisborgarar 13,6% íbúa

Alls voru 49.403 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi 1. janúar síðastliðinn og fjölgaði þeim um 59 mánuðinn á undan. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 247 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Langflestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi, eða 20.655. Pólskum ríkisborgurum sem búsettir eru…Lesa meira

true

Bálhvasst víða og vegir lokaðir

Hann hefur blásið hraustlega í landshlutanum í nótt og í morgun, svo ekki sé meira sagt og á allnokkrum stöðum eru vegir lokaðir eða ófærir. Vindhraði á Kjalarnesi hefur verið nálægt 30 m/s frá því um eittleytið í nótt. Vindhraði í hviðum hefur almennt verið milli 40 og 45 m/s í alla nótt, en fór…Lesa meira

true

Sæmundur er 85 ára í dag

Sæmundur Sigmundsson fyrrum sérleyfishafi í Borgarnesi er 85 ára í dag. Sjálfur hyggst hann ekki halda upp á áfangann, en það ætla hins vegar félagar hans í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar að gera með því að bjóða gestum og gangandi upp á kaffi og með‘í í húsnæði félagsins í Brákarey klukkan 20 í kvöld. „Okkur langar til…Lesa meira

true

Lög um keðjuábyrgð hafa tekið gildi

Ákvæði um keðjuábyrgð sem sporna á við mögulegri misnotkun á vinnuafli hér á landi hefur verið innleitt í lög um opinber innkaup, en það er þáttur í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn félagslegum undirboðum og brotum á vinnumarkaði. Jafnframt hafa verið unnar leiðbeiningar þar sem fjallað er um keðjuábyrgð og hvernig verktakar og opinberir…Lesa meira

true

Enn er bálhvasst um vestanvert landið – erfið færð eða ófært

Mikið hvassviðri hefur síðan í gærdag einkennt veðráttuna um vestanvert landið. Hávaða rok af norðaustan stingur sér illa niður á svæðum þar sem vindur stendur af fjöllum. Á Kjalarnesi þurfti í gærkvöldi að loka veginum fyrir umferð eftir að ökumenn voru að lenda í vandræðum. Á sunnanverðu Snæfellsnesi var mjög hvasst og fór vindur á…Lesa meira

true

Sjávarlíf er einstakur ljósmyndavefur úr undirdjúpunum

Erlendur Bogason kafari hefur um langt árabil safnað myndum af sjávarlífverum og hafsbotni. Myndir hans hafa nú verið gerðar aðgengilegar á vefnum sjavarlif.is en þær hafa allar verið teknar neðansjávar við Íslandsstrendur. Í kynningu á verkefninu segir að efnið á vefnum muni nýtast við rannsóknir og fræðslu fyrir sjávarútveg og almenning. Myndefnið flokkast í nokkra…Lesa meira

true

Mótmæla því að Skógarstrandarvegur er ekki á samgönguáætlun á næstunni

Frestur til að senda umsagnir til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna samgönguáætlunar rann út síðastliðinn föstudag. Um er að ræða umsagnir um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024 en auk þess 15 ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 – 2034. Nokkur sveitarfélög og fulltrúar þeirra á Vesturlandi gera athugsemdir í ljósi þess…Lesa meira