Fréttir

true

Jens Heiðar ráðinn slökkviliðsstjóri

Jens Heiðar Ragnarsson hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Bæjarstjórn Akraness samþykkti ráðningu hans einróma á fundi sínum 14. janúar. Alls sóttust ellefu eftir starfi slökkviliðsstjóra þegar starfið var auglýst, en einn dró umsókn sína til baka. Jens Heiðar er reyndur slökkviliðsmaður. Hann hefur starfað í slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar frá árinu 1998…Lesa meira

true

Fræðandi, afslöppuð og skemmtileg frásögn

Magnús Ólafsson sagnamaður frumsýndi Öxina á sunnudag   Öxin var frumsýnd fyrir fullu húsi á Sögulofti Landnámsseturs Íslands síðastliðinn sunnudag. Þar segir Magnús Ólafsson sagnamaður frá síðustu aftökunni hér á landi, þegar Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru tekin af lífi fyrir morðin á Natani Ketilssyni og Pétri Jónssyni. Sýningin hófst kl. 14:00, sunnudaginn 12.…Lesa meira

true

Anna er nýr skrifstofustjóri Akraneskirkju

Anna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri hjá Akraneskirkju. Hún vann í nærri 21 ár hjá Speli, fyrst sem aðalbókari og svo síðasta árið sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Anna hefur því mikla reynslu af bókhaldi. Þá hefur hún starfað í Slysavarnadeildinni Líf þar sem hún lauk m.a. námskeiði í sálrænni skyndihjálp. „Þetta starf freistaði mín fyrst og…Lesa meira

true

Íbúum boðið frítt í Frystiklefann allt árið

Nú árið 2020 verða tíu ár liðin frá því starfsemi hófst í Frystiklefanum í Rifi. Í tilefni þeirra tímamóta ætla aðstandendur menningarhússins, í samstarfi við bakhjarla og velunnara, að færa öllum íbúum Snæfellsbæjar ársmiða að gjöf. Veitir ársmiðinn hverjum þeim sem hefur skráð lögheimili í Snæfellsbæ aðgang að öllum viðburð Frystiklefans á árinu 2020. „Með…Lesa meira

true

Mannamót landshlutanna í ferðaþjónustu

Markaðsstofur landshlutanna setja upp kaupstefnuna Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín á morgun, fimmtudaginn 16. janúar. Viðburðurinn verður haldinn í Kórnum í Kópavogi . Eftirspurn ferðaþjónustufyrirtækja sem vilja vera með bás á sýningunni hefur aldrei verið meiri en alls verða 270 fyrirtæki með bás. Þá hafa að meðaltali um 800 gestir komið á sýninguna síðustu ár. Mannamót…Lesa meira

true

Þrjú stór snjóflóð féllu á Vestfjörðum í gærkvöldi

Á tólfta tímanum í gærkvöldi féllu alls þrjú stór snjóflóð á Vestfjörðum; tvö á Flateyri og eitt úr fjallinu handan Suðureyrar í Súgandafirði. Það flóð olli flóðbylgju sem skall á höfnina og strandlengjuna við þorpið á Suðureyri. Enginn slasaðist þar en eignatjón er talsvert. Á Flateyri féllu tvö stór snjóflóð með tveggja mínútna millibili. Flóðvarnargarðar…Lesa meira

true

Heldur út til Indlands að keppa í matreiðslu

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mat og eldmamennsku en ég var aldrei að pæla í að læra kokkinn,“ segir tvítugi Skagamaðurinn Anton Elí Ingason en um þessar mundir er hann að undirbúa sig fyrir Ólympíukeppni í matreiðslu sem fram fer á Indlandi í lok þessa mánaðar. Anton er fæddur og uppalinn á Akranesi…Lesa meira

true

Föstudagurinn DIMMI framundan í Borgarnesi

Föstudagurinn DIMMI verður haldinn í fjórða sinn í Borgarbyggð um næstu helgi. Þá eru íbúar hvattir til að taka hvíld frá raftækjum og njóta samverunnar með fjölskyldu og vinum, hafa raunveruleg samskipti í stað rafrænna samskipta, brjóta upp á hversdagsleikann og lesa Skessuhorn við kertaljós. „Þemað í ár er samvera fjölskyldunnar sem ég held að…Lesa meira

true

Rætt við nýjan skólameistara FVA í Skessuhorni

Steinunn Inga Óttarsdóttir er nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Hún var skipuð í embætti snemma desembermánaðar og hóf störf 2. janúar síðastliðinn. Skólastarf hefur henni lengi verið hugleikið og kannski má segja að skólastjórnun sé henni í blóð borin. Faðir hennar var kennari og skólastjóri, móðir hennar og systir einnig. Skessuhorn hitti Steinunni að…Lesa meira

true

Safna fæðingarsögum feðra í bók

Hólmarinn Ísak Hilmarsson og Gréta María kona hans safna fæðingarsögum feðra fyrir bók sem þau ætla að gefa út. Hugmyndin kviknaði síðasta sumar en þar sem Gréta er ljósmóðir eru fæðingar oft ræddar í vinahópi þeirra hjóna. „Ég sagði við hana síðasta sumar að kannski væri sniðugt að safna saman fæðingarsögum feðra og gefa út.…Lesa meira