Fréttir

true

Glufan nýtt milli lægða

Loks dúraði í gærkvöldi og nýttu nokkrir sjómenn á Snæfellsnesi það, þegar gerði gott veður eftir kvöldmat. En veðurspá gerði ráð fyrir blíðu fram í morgunsárið og síðan vaxandi vindi þegar liði á morguninn og því má segja að glufan hafi verið vel nýtt. Bátarnir voru flestir komnir að landi snemma morguns með þokkalegan afla,…Lesa meira

true

Samið fyrir hönd starfsmanna sveitarfélaga í VLFA

Verkalýðsfélag Akraness undirritaði á föstudag nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd félagsmanna sem vinna hjá sveitarfélögunum Akraneskaupstað og Hvalfjarðarsveit. Gildistími samningsins er til loka september 2023. Samkvæmt honum hækka launataxtar um 17 þúsund krónur á mánuði frá síðustu áramótum, um 24 þúsund 1. apríl og um sömu fjárhæð um næstu áramót. Launin hækka…Lesa meira

true

Gul viðvörun eftir hádegi á morgun og fram á þriðjudagskvöld

Ekkert lát er á kröppum vetrarlægðum sem ganga innyfir landið hver á fætur annarri. Nú er gul viðvörun í gildi fyrir Faxaflóasvæðið og Breiðafjörð frá því á hádegi á mánudag og fram á þriðjudagskvöld. Spáð er vaxandi norðaustanátt síðdegis á morgun, víða verða él og skafrenningur með tilheyrandi erfiðum skilyrðum til aksturs. Við Faxaflóa verða…Lesa meira

true

Bjargað úr sjálfheldu á Vífilsfjalli

Undir kvöld í gær, laugardag, var óskað eftir aðstoð björgunarsveita vegna konu sem var í sjálfheldu ofarlega í Vífilsfelli, sem er nálægt þjóðveginum við Sandskeið. Konan var ein á ferð og óslösuð. Í fjallinu var snjór og svellbunkar inn á milli og því þurfti að fara að öllu með gát. Óskað var eftir björgunarsveitarfólki sem…Lesa meira

true

Lokað á mánudag og þriðjudag í Geirabakaríi

Geirabakarí í Borgarnesi verður lokað vegna framkvæmda í verslun mánudaginn 13. janúar og þriðjudaginn 14. janúar. „Við opnum hress með nýju útliti miðvikudaginn 15. janúar. Í tilefni breytinganna ætlar Geiri að bjóða viðskiptavinum sínum uppáhelling þann dag , kleinur og skúffuköku,“ segir í tilkynningu frá starfsfólki Geirabakarís.  Lesa meira

true

Vestlendingar eru nú 16.663

Íbúar í tíu sveitarfélögum á Vesturlandi voru 16.663 um nýliðin áramót, þremur færri en mánuði áður, en 116 fleiri en þeir voru 1. desember 2018. Í desember fjölgaði íbúum mest á landsvísu í Dalabyggð, en þar búa nú 639 íbúar en voru 634 þann 1. desember. Nemur það 0,8% fjölgun. Íbúum fækkaði í mánuðunum í…Lesa meira

true

Hálendisþjóðgarður – opinn kynningarfundur í Borgarnesi

Kynningarfundur umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundar Inga Guðbrandssonar, um áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs, verður haldinn á sunnudag, 12. janúar kl. 20:00 á Hótel Hamri í Borgarnesi. Fundinum var eins og kunnugt er frestað síðastliðinn þriðjudag vegna veðurs. Á fundinum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins. Frumvarp…Lesa meira

true

Vesturlandsvegur opnaður að nýju

Búið er að opna fyrir umferð um Vesturlandsveg í Kollafirði eftir að honum hafði verið lokað vegna alvarlegs umferðaslyss rétt fyrir hádegi í dag. Stór ruslagámur virðist hafa losnað af vöruflutningabíl á leið í norðurátt og lenti gámurinn á tveimur bílum sem komu úr gagnstæðri átt, vörubíl og litlum fólksflutningabíl. Ökumenn beggja bílanna sem fengu…Lesa meira

true

Tveir togarar í loðnuleit með Árna Friðrikssyni

Í byrjun næstu viku mun rannsóknaskipið Árni Friðriksson halda til loðnuleitar og mælinga ásamt tveimur uppsjávarveiðiskipum Bjarna Ólafssyni AK-70 og Hákoni EA-148. Nokkurrar óvissu hefur að undanförnu gætt um þátttöku útgerða í loðnuleit, en nú hafa samningar tekist. Hafrannsóknastofnun hefur ótvírætt hlutverk að stunda stofnmælingar á loðnu líkt og á öðrum nytjastofnum og á grunni…Lesa meira

true

Uppbókað á Mannamót landshlutanna í næstu viku

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna í ferðaþjónustu verður haldið í íþróttahúsinu Kórnum í Kópavogi næstkomandi fimmtudag frá klukkan 12-17. Öll pláss fyrir sýnendur á Mannamóti hafa nú verið seld, en 270 pláss voru í boði. Ásóknin sýnir hve mikilvægur viðburður þetta er fyrir íslenska ferðaþjónustu.Lesa meira