Fréttir

true

Ísland í tólfta sæti á heimsmeistaramóti PRS

Níu íslenskir keppendur tóku þátt fyrir Íslands hönd á 2026 IPRF Centerfire World Championship í skotfimi, sem fram fór í Texas í Bandaríkjunum í september. Keppendur frá 24 löndum tóku þátt í mótinu og hafnaði Ísland í 12. sæti í samanlögðum landliðsárangri með 971 stig. Mótið fór fram dagana 24.-27. september á Gravestone Precision Shooting…Lesa meira

true

Brúni hundamítillinn greinist

Matvælastofnun barst nýverið tilkynning um að brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) hafi greinst á hundi á Selfossi. Eigandinn fann mítilinn við burstun á feldi hundsins og fór í kjölfarið með hann á Dýralæknaþjónustu Suðurlands. Þaðan var mítillinn sendur til greiningar á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Tegundagreining leiddi í ljós að um var að…Lesa meira

true

Bleik messa í Grundarfjarðarkirkju

Í gærkvöldi var bleik messa í Grundarfjarðarkirkju. Athöfnin var afskaplega notaleg þar sem sr. Karen Hjartardóttir stýrði guðsþjónustunni. Eygló Kristjánsdóttir kom og sagði frá reynslu sinni af baráttu við brjóstakrabbamein og þegar hún gekk Jakobsveginn eftir að hafa náð heilsu að nýju. Þess má geta að Eygló er móðir sr. Karenar. Að messu lokinni var…Lesa meira

true

Snæfellsbær styrkir verslun og þjónustu með jólagjöfum til starfsfólks

Snæfellsbær ætlar líkt og í fyrra að færa starfsfólki sínu gjafabréf í jólagjöf sem nýta má hjá verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu. Ákvörðunin er tekin í kjölfar góðra undirtekta bæði starfsmanna og fyrirtækja á síðasta ári. Með þessu vill sveitarfélagið gefa starfsfólki kost á að velja sér jólagjöf að eigin ósk og um leið styðja…Lesa meira

true

Leggur til að einkunnir verðir framvegis gefnar í tölustöfum

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að bráðabirgðaákvæði í aðalnámskrá grunnskóla. Ákvæðið útfærir fyrirhugaða notkun talnaeinkunna við brautskráningu úr 10. bekk á yfirstandandi skólaári í stað bókstafseinkunnanna A–D. „Markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla er að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði…Lesa meira

true

Erlend netverslun heldur áfram að aukast

Enn er ekkert lát á aukningu erlendrar netverslunar Íslendinga og stefnir í að verslun á síðustu þremur mánuðum ársins nemi tæpum 13 milljörðum króna. Samkvæmt nýbirtum tölum Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) keyptu Íslendingar fyrir 2,93 milljarða króna í erlendum netverslunum í ágúst, sem er 9,13% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á sumarmánuðunum, júní til ágúst,…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Borgarnesi í kvöld – ÍA sækir Skallagrím heim

Það má búast við hörkuleik í Fjósinu í Borgarnesi í kvöld, föstudaginn 9. október, þegar heimamenn taka á móti Skagamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik. Flautað verður til leiks klukkan 19.15 og eru bæði lið staðráðin í að næla sér í dýrmæt stig á fyrstu vikum tímabilsins. Skagamenn, undir stjórn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar, hófu…Lesa meira

true

Friður á vinnumarkaði út næsta ár

Síðdegis í gær náðist samkomulag um að kjarasamningar verða áfram í gildi út árið 2027 þrátt fyrir að tólf mánaða verðbólga hafi verið hærri en forsendur samninganna gerðu ráð fyrir. Í byrjun vikunnar sömdu Efling, Starfsgreinasambandið og fleiri félög en í gær var komið að VR og öðrum sem áttu eftir ósamið. Áður en til…Lesa meira

true

Sjúkrabíllinn fyrstur á vettvang bílveltu

Líklega hefur einhvers konar met verið slegið á miðvikudaginn þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni, rétt austan við Breiðablik, Gestastofu Snæfellsness í Eyja- og Miklaholtshreppi, með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf og valt. Sjúkrabíll á vegum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands var á vesturleið með sjúkling og ók fram á vettvang rétt eftir að óhappið hafði…Lesa meira

true

Skagamenn hefja lokasprettinn gegn Íslandsmeisturunum

Aðeins þrjár umferðir eru eftir af Bestu deild karla í knattspyrnu og fram undan er spennandi lokasprettur hjá Skagamönnum, sem eiga enn möguleika á að tryggja sér sæti í Evrópukeppni á næsta ári. Eftir þriggja vikna landsleikjahlé verður keppni í efri hluta deildarinnar fram haldið á sunnudagskvöld þegar ÍA sækir Íslandsmeistara Víkings í Reykjavík heim.…Lesa meira