Skagamenn hefja lokasprettinn gegn Íslandsmeisturunum

Aðeins þrjár umferðir eru eftir af Bestu deild karla í knattspyrnu og fram undan er spennandi lokasprettur hjá Skagamönnum, sem eiga enn möguleika á að tryggja sér sæti í Evrópukeppni á næsta ári. Eftir þriggja vikna landsleikjahlé verður keppni í efri hluta deildarinnar fram haldið á sunnudagskvöld þegar ÍA sækir Íslandsmeistara Víkings í Reykjavík heim. Flautað verður til leiks klukkan 19:15 á Víkingsvellinum.