
Brúni hundamítillinn greinist
Matvælastofnun barst nýverið tilkynning um að brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) hafi greinst á hundi á Selfossi. Eigandinn fann mítilinn við burstun á feldi hundsins og fór í kjölfarið með hann á Dýralæknaþjónustu Suðurlands. Þaðan var mítillinn sendur til greiningar á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Tegundagreining leiddi í ljós að um var að ræða brúna hundamítilinn. Brúni hundamítillinn hefur aðeins greinst í örfá skipti hér á landi og er ekki talinn landlægur á Íslandi. Tekist hefur að uppræta hann í fyrri tilvikum. Matvælastofnun vinnur að því að koma í veg fyrir að hann nái fótfestu hér á landi.
Hvað á að gera ef grunur vaknar?
Matvælastofnun hvetur hunda- og kattaeigendur til að skoða húð og feld dýra sinna reglulega. „Hafið samband við dýralækni ef mítill finnst á hundi eða grunur vaknar um mítla. Dýralæknir veitir leiðbeiningar um næstu skref. Varðveitið á mítla sem finnast og komið þeim til greiningar að Keldum. Almenningur og dýralæknar eru hvattir til að skila öllum mítlum til rannsókna á tilraunastöð Háskólans Íslands í Meinafræði að Keldum sem finnast á fólki eða dýrum,“ segir í tilkynningu.
„Látið upplýsingar fylgja sýninu. Mikilvægt er að sýni fylgi upplýsingar um dagsetningu og fundarstað, hvort mítillinn fannst á manni eða dýri og hvar viðkomandi hefur haldið sig síðustu daga. Einnig þurfa að fylgja upplýsingar um finnanda og ef mítillinn fannst á dýri, þá upplýsingar um dýrið, eiganda þess og hvernig má hafa samband við viðkomandi.
Algengast er á Íslandi að finna fuglamítla (lundamítil) eða skógarmítla, sem geta borist til landsins með farfuglum. Í stöku tilfelli finnst brúni hundamítillinn og getur sníkjudýrafræðingur greint á milli framangreindra tegunda. Ef brúni hundamítillinn greinist þarf að tilkynna það tafarlaust til Matvælastofnunar á mast@mast.is.“