Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju flutti nokkra fallega sálma. Ljósm. tfk

Bleik messa í Grundarfjarðarkirkju

Í gærkvöldi var bleik messa í Grundarfjarðarkirkju. Athöfnin var afskaplega notaleg þar sem sr. Karen Hjartardóttir stýrði guðsþjónustunni. Eygló Kristjánsdóttir kom og sagði frá reynslu sinni af baráttu við brjóstakrabbamein og þegar hún gekk Jakobsveginn eftir að hafa náð heilsu að nýju. Þess má geta að Eygló er móðir sr. Karenar. Að messu lokinni var boðið upp á bleikar vöfflur og bleikan rjóma. Þá var búið að setja upp bleika búð þar sem bleika slaufan og fleiri bleikar vörur voru til sölu til styrktar Krabbameinsfélagi Snæfellsness.