Snæfellsbær styrkir verslun og þjónustu með jólagjöfum til starfsfólks

Snæfellsbær ætlar líkt og í fyrra að færa starfsfólki sínu gjafabréf í jólagjöf sem nýta má hjá verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu. Ákvörðunin er tekin í kjölfar góðra undirtekta bæði starfsmanna og fyrirtækja á síðasta ári. Með þessu vill sveitarfélagið gefa starfsfólki kost á að velja sér jólagjöf að eigin ósk og um leið styðja við atvinnulífið í heimabyggð.