
Íslenska landsliðið sem keppti á heimsmeistaramótinu í PRS í Texas í september. Ljósmynd: Gunnar Ásgeirsson.
Ísland í tólfta sæti á heimsmeistaramóti PRS
Níu íslenskir keppendur tóku þátt fyrir Íslands hönd á 2026 IPRF Centerfire World Championship í skotfimi, sem fram fór í Texas í Bandaríkjunum í september. Keppendur frá 24 löndum tóku þátt í mótinu og hafnaði Ísland í 12. sæti í samanlögðum landliðsárangri með 971 stig.