Fréttir

true

Sara Sesselja og Sóley Rósa valdar á úrtaksæfingar U15

Sara Sesselja Sveinbjörnsdóttir og Sóley Rósa Sigurjónsdóttir frá Akranesi, báðar fæddar árið 2012, hafa verið valdar til úrtaksæfinga U15 landsliðs kvenna í knattspyrnu. Stúlkurnar koma saman með landsliðshópnum dagana 15.–17. október undir stjórn Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur landsliðsþjálfara. Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir þróunarmót sem fram fer í byrjun nóvember og því spennandi verkefni…Lesa meira

true

Leitað að handhafa Bláskeljarinnar 2026

Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026, verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Leitað er að einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum um allt land sem hafa fundið leiðir til að nýta auðlindir betur og halda verðmætum lengur í umferð. Bláskelin fær nýtt hlutverk í ár. Hingað til hafa verðlaunin…Lesa meira

true

Þúsund kílómetrar á hálfvilltum hestum um mongólsku steppuna

„Þá hélt ég að þetta væri búið“ – segir Markús Ingi Karlsson ævintýramaður Þegar Markús Ingi Karlsson lagði af stað í Mongol Derby í Mongólíu vissi hann að fram undan væru þúsund kílómetrar á hestbaki um víðáttumiklar steppur landsins. Hann vissi líka að hann fengi nýjan, lítt taminn mongólskan hest á 30–35 kílómetra fresti, að…Lesa meira

true

Foreldrafræðsla um skjátíma og skýr mörk

Foreldrafræðsla undir yfirskriftinni „Stolin athygli leitar eiganda síns“ fer fram í Tónbergi á Akranesi þriðjudaginn 13. október kl. 17:30. Þar verður sjónum beint að stafrænu umhverfi barna, skjátíma og áhrifum samfélagsmiðla. Kristín Ómarsdóttir og Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingar hjá Netvís, fjalla um hvernig leikir og smáforrit eru hönnuð til að fanga og halda athygli barna.…Lesa meira

true

Leiðin til að læra að elska sjálfan sig

„Við komum öll einhvers staðar frá og berum öll einhvern bagga“ Kristín Magdalena Ágústsdóttir hefur komið sér fyrir með litla og hlýlega meðferðarstofu í Borgarnesi þar sem hún tekur á móti fólki sem vill vinna með tilfinningar sínar, reynslu og þau sár sem lífið kann að hafa skilið eftir. Starfsemin ber nafnið „Leiðin til að…Lesa meira

true

Fyrri kynningarfundur Landsnets verður í kvöld

Landsnet býður til tveggja opinna kynningarfunda og vinnustofa vegna valkostagreiningar fyrir Vegamótalínu 2 milli Vatnshamra í Andakíl og Vegamóta á Snæfellsnesi. Línan verður byggð sem 132 kV loftlína og henni haldið uppi með stöguðum stálröramöstrum. Fyrst um sinn verður hún rekin á 66 kV. „Markmið með framkvæmdinni er að tryggja tvítengingu Snæfellsness og að auka…Lesa meira

true

Nýtt gámasvæði og aukið öryggi á Grundartanga

Framkvæmdum við nýtt gámasvæði Faxaflóahafna á baksvæði Tangabakka á Grundartanga er lokið. Með framkvæmdunum hefur aðstaða til meðhöndlunar og geymslu gáma verið stórbætt, auk þess sem ný lýsing á svæðinu eykur öryggi starfsmanna og bætir vinnuaðstæður. Gámasvæðið hefur verið malbikað og nýju fráveitukerfi komið fyrir, með niðurföllum, regnvatnslögnum og brunnum sem tengjast núverandi lagnakerfi. Landið…Lesa meira

true

Jeppar í lífi þjóðar – endurbætt og aukin útgáfa

Út er komin hjá Forlaginu aukin og endurbætt útgáfa af bókinni Jeppar í lífi þjóðar, eftir Örn Sigurðsson. Nýja bókin er 320 síður að lengd með 700 ljósmyndum sem margar hafa hvergi sést áður. Samgöngubylting varð á Íslandi um miðja síðustu öld þegar þúsundir Willys-jeppa streymdu að hliðum gömlu herjeppanna, og brátt renndu Landróverar og…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar afhenti í morgun árlegar viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og bújarðir í sveitarfélaginu auk samfélagsviðurkenningar. Kristján Ágúst Magnússon formaður nefndarinnar lýsti niðurstöðu nefndarinnar. Verðlaun eru afhent í fimm flokkum og var niðurstaðan eftirfarandi: Gleym mér ei er snyrtilegasta atvinnulóðin Gróðrarstöðin Gleym mér ei við Sólbakka í Borgarnesi var valin snyrtilegasta lóð við…Lesa meira

true

Talað saman í FVA á laugardaginn

Skagamönnum á öllum aldri er boðið að hittast í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi næstkomandi laugardag kl. 14 í samtali um: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Verður efnt til slíks samtals um allt land. Nemendur grunn- og framhaldsskóla leiða samtölin en öllum kynslóðum er boðið að taka þátt, hlusta á ólík sjónarmið og ræða hvað…Lesa meira