Fréttir

true

Sjónvarpsfréttir Sýnar heyra brátt sögunni til

Það er skammt stórra högga á milli í fjölmiðlaflóru landsmanna. Nú hefur Sýn birt tilkynningu þess efnis að fyrirtækið hafi ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og morgundeginum, 1. september. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður því sendur út í kvöld. Starfsfólki sem vann við sjónvarpsfréttir verður sagt upp í kjölfarið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu…Lesa meira

true

Unnið við holuviðgerðir á Akrafjallsvegi í dag

Frá klukkan 9-16 í dag, mánudaginn 31. ágúst, stefnir Colas á að gera holuviðgerðir á Akrafjallsvegi. Umferð verður handstýrt á kafla þegar það þarf og hægt verður á umferðarhraða. „Vinsamlegast virðið merkingar og hraðatakmarkanir. Búast má við einhverjum smá umferðatöfum,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Afurðaverð til bænda nær ekki vísitöluhækkun

Afurðastöðvar hafa nú flestar birt verð til bænda fyrir innlagt dilkakjöt í haust. Hækkun frá síðasta ári er frá 4,0 – 5,1% en athygli vekur að tólf mánaða verðbólga samkvæmt Seðlabanka Íslands mælist nú 5,6%. Hækkunin afurðaverðs til bænda nær því ekki vísitöluhækkun. Ofan á hækkun greiða afurðastöðvarnar viðbótar álag sem útfært er með ýmsum…Lesa meira

true

Tímabil rjúpnaveiða ákveðið

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest veiðitímabil rjúpu í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Hér á Vesturlandi verður leyft að veiða dagana 23. október til 1. desember. Ítrekað er að sölubann er á…Lesa meira

true

Fyrstu fjárréttir verða um næstu helgi

Líkt og undanfarin ár taka Bændasamtök Íslands saman lista yfir fjárréttir á haustin. Meðfylgjandi eru upplýsingar BÍ um flestar réttir sem verða hér á Vesturlandi, birt með fyrirvara um villur. Bent er á að fyrstu réttir verða um næstu helgi. Bláfeldarrétt í Staðarsveit. 26. september Brekkurétt í Norðurárdal í Borgarfirði. 13. september kl. 11 og…Lesa meira

true

Bjargað úr sjálfheldu

Á áttunda tímanum í gærkvöldi barst björgunarsveitum aðstoðarbeiðni frá einstaklingi sem lent hafði í sjálfheldu í gili í Hafnarfjalli. Viðkomandi var einn á ferð. Björgunarsveitir frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði voru kallaðar til sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Þyrlusveitin náði til viðkomandi, flutti úr fjallinu og niður á láglendi þar sem björgunarsveitir tóku við. Aðgerðin tókst…Lesa meira

true

Þjóðin hafnaði áframhaldi viðræðna við ESB

Landsmenn gengu að kjörborðinu í gær og kusu í þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu ríkisstjórnarinnar um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ágæt kjörsókn var og veðrið lék við landsmenn. Alls kusu 82,5% landsmanna en það er betri kjörsókn en var í alþingiskosningum 2024, þegar 80,2% nýttu kosningaréttinn. Niðurstaðan var sú að viðræðum við ESB…Lesa meira

true

Svekkjandi tap Skagakvenna á lokamínútunni

Skagakonur máttu sætta sig við afar svekkjandi 2:3 tap gegn Völsungi í 16. umferð Lengjudeildar kvenna í Akraneshöllinni í gær. Úrslitin réðust ekki fyrr en á lokamínútu leiksins þegar gestirnir skoruðu sigurmarkið. ÍA byrjaði leikinn af krafti og Alliyah Monica Rowe kom heimakonum yfir strax á 11. mínútu. Forystan entist þó ekki lengi því Auður…Lesa meira

true

Haukar of sterkir fyrir Víking í Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík tapaði 1:4 fyrir toppliði Hauka þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 20. umferð 2. deildar karla í gær, laugardaginn 29. ágúst. Fátt var um fína drætti í fyrri hálfleik og lengi vel tókst hvorugu liðinu að finna leiðina í markið. Það breyttist á 42. mínútu þegar Ólafur Darri Sigurjónsson kom Haukum yfir og…Lesa meira

true

Skallagrímur þarf að snúa taflinu við í Borgarnesi

Skallagrímur tapaði 2:1 fyrir Stokkseyri í fyrri leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni 5. deildar karla í knattspyrnu á Stokkseyrarvelli í dag. Leikurinn var jafn og fjörugur en heimamenn tryggðu sér sigurinn með marki skömmu fyrir leikslok. Arilíus Óskarsson kom Stokkseyri yfir á 37. mínútu eftir mikla baráttu í fyrri hálfleik. Borgnesingar voru þó fljótir að…Lesa meira